Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 28. mars 2026 12:43 Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eru í jafnri stöðu á topnnum og Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir flokkana eiga í einvígi í borginni. Hildur Björnsdóttir leiðir lista Sjálfstæðismanna í annað sinn en Pétur Marteinsson er nýr oddviti Samfylkingar. vísir/samsett Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eiga í einvígi í Reykjavík að mati prófessors í stjórnmálafræði en flokkarnir eru nær hnífjafnir samkvæmt nýrri könnun. Línur séu teknar að skýrast og skipta megi flokkunum upp í þrjár deildir. Líklega verði hægt að mynda meirihluta til vinstri eða hægri. „
Auðvitað vekur kannski mesta athygli að þetta er orðið hreinræktað einvígi á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins sem eru að mælast hnífjöfn með ríflega 21 prósent atkvæða. Bæði hafa reyndað dalað ögn sem hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þessa flokka,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði um nýja könnun Maskínu fyrir DV sem var birt í morgun. Samfylking dalar meira frá síðustu könnun Maskínu en Sjálfstæðisflokkur og tapar tæplega þremur prósentum. Báðir flokkar myndu samkvæmt þessu fá kjörna sex borgarfulltrúa. Hið nýstofnaða sameiginlega framboð á vinstri væng sem nefnist Vinstrið er á mikilli siglingu, mælist með 12,4 prósent og fengi þrjá fulltrúa. „Að mörgu leyti má lýsa stöðunni í framboðsmálum í borginni þannig að mesta sóknarfærið sé fyrir vinstrið. Það er kannski það framboð sem hefur haft mesta rýmið til þess að vaxa,“ segir Eiríkur. Viðreisn tekið við af Framsókn Viðreisn mælist einnig í kringum tólf prósent. „Viðreisn er svolítið í oddastöðu með það og getur farið bæði til vinstri og hægri. Hefur að einhverju leyti tekið við klassískri stöðu Framsóknarflokksins hvað það varðar.“ Skipta má flokkunum sem eiga í baráttu um borgina upp í þrjár deildir, segir prófessor í stjórnmálafræði.vísir/Vilhelm Miðflokkurinn mælist svipaður á milli kannana, með 10,6 prósent og fengi þrjá fulltrúa. Píratar og Framsókn mælast í kringum fimm prósent og Flokkur fólksins með tæplega fjögur. Eiríkur segir þrjár nokkurs konar deildir að teiknast upp. „Það er úrvalsdeild Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins sem keppa um forystuna. Í næstu deild þar fyrir aftan koma Viðreisn, Vinstrið og Miðflokkurinn sem eru öll í vænlegri stöðu yfir tíu prósentunum. Restin er bara í meiriháttar vandræðum og berst fyrir lífi sínu.“ Spennandi kosningar séu fram undan. „Í þessu er kannski svona aðeins augljósari meirihluti til vinstri en ekkert mikið meiri en hægt væri að teikna upp hægra megin,“ segir Eiríkur Bergmann.
Skoðanakannanir Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Vinstrið Viðreisn Píratar Flokkur fólksins Framsóknarflokkurinn Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira