Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 10:40 Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi, Aðsend Hluthafar Kemi og Fálkans Ísmars hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Sameinað félag verður í eigu Sjávarsýnar, Hermanns Guðmundssonar og Freyju framtakssjóðs.
Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og áreiðanleikakönnun á báðum félögum samkvæmt tilkynningu frá félögunum. Verði af sameiningu er gert ráð fyrir að starfsemi Kemi verði áfram á Tunguhálsi 10, Reykjavík og starfsemi Fálkans Ísmars á Dalvegi 10-14, Kópavogi. „Þekking og reynsla starfsfólks hefur verið lykillinn að velgengni beggja félaga síðustu ár og verður áfram grunnurinn að enn frekari árangri hjá sameinuðu félagi. Sameiningin mun skapa tækifæri til að efla sölustarf og útvíkka vöruframboð með það að markmiði að byggja upp leiðandi sölu- og þjónustufyrirtæki með rekstrar- og fjárfestingavörur fyrir íslenskan iðnað,” segir Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi, samkvæmt tilkynningu. Fálkinn og Ísmar sameinuðust undir heitinu Fálkinn Ísmar árið 2021. Kemi keypti rekstur Poulsen árið 2022. Samanlögð velta Kemi og Fálkans Ísmars var tæplega sex milljarðar króna árið 2025 og hjá sameinuðu félagi munu starfa tæplega hundrað manns. Í tilkynningu kemur fram að fyrirtækin starfi bæði á fyrirtækjamarkaði og að þau þjóni breiðum hópi viðskiptavina á sviði iðnaðar í íslensku samfélagi. Kjarninn í starfsemi Fálkans Ísmars sé sala og þjónusta á tækni-, raf- og vélbúnaði m.a. til verktaka, gagnavera, sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja, opinberra aðila, orkufyrirtækja, stóriðju og verkstæða. Kemi leggur áherslu á valda vöruflokka s.s. olíu- og efnavörur, bílavarahluti, öryggisvörur, landbúnaðarvörur, verkfæri og tæki ásamt því að vera umsvifamikið í innflutningi á bílrúðum og reka tvö bílrúðuverkstæði undir merkjum Poulsen.
Samkeppnismál Vistaskipti Bílar Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira