Handbolti

Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin

Sindri Sverrisson skrifar
Janus Daði Smárason er búinn að handsala samning við Barcelona.
Janus Daði Smárason er búinn að handsala samning við Barcelona. Barcelona

Eins og lengi hefur legið í loftinu þá mun Janus Daði Smárason ganga til liðs við Barcelona en spænska stórveldið hefur nú greint frá þessu á miðlum sínum.

Íslenski leikstjórnandinn verður leikmaður Barcelona í sumar, þegar hann kemur frá Pick Szeged í Ungverjalandi, og er samningur hans við Börsunga til sumarsins 2029.

Janus Daði hefur verið sagður á leið til Barcelona og náðust myndir af honum í heimsókn þar síðasta haust. Hann hefur þó að sjálfsögðu ekki viljað staðfesta neitt sjálfur í þessum málum heldur beðið eftir því að félagið geri það.

Hjá Barcelona hittir Janus fyrir félaga sinn úr landsliðinu, Viktor Gísla Hallgrímsson. Félagið hefur haft algjöra yfirburði á Spáni og orðið spænskur meistari öll tímabil frá árinu 2011 auk þess að vinna til að mynda Meistaradeild Evrópu þrisvar á árunum 2021-24.

Janus, sem er uppalinn Selfyssingur en lék einnig með Haukum hér á landi, hefur áður spilað í Danmörku, Þýskalandi og Noregi en verið hjá Pick Szeged síðustu tvö ár.

Auðvelt val þegar stærsta félag heims hefur samband

Í viðtali á vef Barcelona kveðst Janus að sjálfsögðu stoltur af því að ganga til liðs við spænska risann.

„Ég vona að ég geti komið með mína styrkleika og hugarfar til að verða hluti af liði sem nú þegar er afar sigursælt. Það var ekki erfitt fyrir mig að taka ákvörðun þegar Barcelona hafði samband. Þetta er sennilega stærsta félag heims og það er heiður fyrir mig sem leikmann að verða hluti af þessari fjölskyldu,“ sagði Janus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×