„Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2026 21:57 Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, sagði dómarana hafa haft áhrif á úrslitin. vísir / diego „Mér fannst við bara eiga skilið að vinna,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, eftir súrt tap liðsins gegn deildarmeisturum Vals í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
HK-ingar, sem höfnuðu í 8. sæti Olísd-deildarinnar, létu deildarmeistarana heldur betur hafa fyrir hlutunum í kvöld og fóru með þá alla leið í framlengingu. Halldór Jóhann segir hins vegar að aðrir en leikmenn hafi haft áhrif á úrslitin. „Mér fannst við gera allt á þessum 60 mínútum til þess að vinna. Mér fannst sigurinn bara vera tekinn af okkur síðasta korterið þar sem að mér halla alveg hrikalega á okkur í dómgæslunni. Ég verð bara að segja það,“ bætti Halldór við. „Það eru bara fullt af atvikum og ef þú horfir á leikinn aftur síðasta korterið þá eru fullt af atvikum. Það eru fullt af vítum, fullt af ruðningsdómum þar sem ekki var dæmdur ruðningur, Sigga (Sigurði Jefferson) er haldið inni á línunni þegar er verið að reyna að spila á hann og ekkert dæmt, Gústi (Ágúst Guðmundsson) er jarðaður í gólfið og það er ekkert flautað. Svo er fjöldinn allur af öðrum atvikum hérna og þeir fá raunverulega bara svolítið hlutina rétta upp í fangið. Þeir þurfa ekkert á því að halda því þeir eru með nógu gott handboltalið til að vinna okkur hérna í dag.“ Halldór sá þó ýmislegt jákvætt í leik sinna manna í kvöld. „Við vorum bara vel undirbúnir og klárir í þetta. Við spiluðum við þá fyrir fáeinum vikum og við tókum mikinn lærdóm af þeim leik. Við vildum selja okkur dýrt og við spiluðum góðan leik,“ sagði Halldór. „Menn geta alveg sagt að Valur hafi ekki spilað góðan leik og það verður örugglega orðræðan eftir leikinn. En mér fannst við bara setja þá undir mikla pressu og þeir lentu í vandræðum. Þannig var þetta bara. En við vildum selja okkur dýrt. Þetta er bara útsláttarfyrirkomulag og það er enginn að verja neitt. Það eru allir á núllpunkti og við vildum bara selja okkur dýrt og ná í fyrsta sigurinn. Það er bara þannig.“ „Það tókst ekki í dag, en djöfull er ég helvíti drullufúll af því að mér fannst við eiga skilið að vinna.“ Þá hefur hann trú á því að sínir menn mæti með sama orkustig í heimaleikinn gegn Val á sunnudaginn. „Ég held að þetta verði bara bensín á tankinn. Það var einhver tölfræði sem ég sá um daginn að við værum ekki búnir að ná í stig á móti Val í 13 ár, en við náum allavega jafntefli á móti þeim í venjulegum leiktíma í kvöld. Ég held að menn séu alveg búnir að sjá það og hafi trú á því að við getum unnið Val og það er það sem við ætlum að gera á sunnudaginn.“ Að lokum segir hann að liðið þurfi aðeins að gera litlar breytingar á sínum leik til að komast yfir línuna á sunnudaginn. „Það vantaði aðeins inn í liðið í kvöld. Það voru smá veikindi og smá meiðsli og vantaði þrjá leikmenn í liðið í kvöld. Eða eiginlega fjóra því við erum með einn sem er eiginlega bara nýbyrjaður að æfa eftir augnskaða og við erum í smá brasi með það að gefa mönnum pásu.“ „Þegar þú ert kominn inn í framlengingu á móti jafn sterku liði og Val þá verður þetta auðvitað erfitt. Bjöggi (Björgvin Páll Gústavsson) kemur sterkur inn hjá þeim í lokin og ver vel á meðan við fáum kannski ekki alveg sömu markvörslu og það er bara rosa stutt á milli þarna. Við þurfum að spila góða vörn og vera ótrúlega agaðir sóknarlega og koma boltanum á markið með góðum skotum, hlaupa til baka og standa fyrstu árás vel. Það er bara svolítið það sem við þurfum að gera á sunnudaginn,“ sagði Halldór að lokum.
Olís-deild karla HK Valur Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Sjá meira