Hvers vegna flutti ég á Akranes? Sigurður Vopni skrifar 25. mars 2026 09:30 Ég grínast oft með það að ég hafi verið dreginn á Akranes. Ég kynntist konu sem er fædd og uppalin á Skaganum og hún sannfærði mig fljótt um að hér væri gott að búa. Smám saman fór ég að taka eftir því sem gerir Akranes einstakt. Andrúmsloftið er rólegra, daglegt líf einfaldara, ljósir sandar meðfram strandlengjunni og viðmót fólks hlýlegt. Akranes er barnvænt sveitarfélag með framúrskarandi skóla á öllum skólastigum og hér hefur verið lögð áhersla á þjónustu við börn og fjölskyldur. Hér er líka mjög öflugt íþróttasamfélag með fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir alla aldurshópa og kennileiti eins og Akranesviti og Akrafjall prýða veggi á flestum heimilum á Skaganum. Unga fólkið sem ólst hér upp fór annað hvort aldrei í burtu eða valdi að flytja aftur heim. Það segir sitt um bæinn. Akranes er nefnilega afar góður staður til að búa á og ég hlakka til að ala upp litla drenginn okkar hér. Tækifæri í því að stækka Akranes er stækkandi sveitarfélag og því fylgir ábyrgð en líka tækifæri. Það er mikilvægt að við horfum fram á veginn og spyrjum okkur hvernig við getum gert gott samfélag betra.Við þurfum að halda áfram að styrkja innviði bæjarins. Stórbæta viðhald gatna og fasteigna, efla þjónustu við eldri borgara og tryggja barnafjölskyldum góðan stuðning. Þar skiptir miklu máli að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og halda áfram að byggja upp og styðja við leik- og grunnskóla bæjarins.Íþróttalífið er einn af hornsteinum samfélagsins á Akranesi. Það er mikilvægt að efla og styrkja hið öfluga starf ÍA og aðildarfélaga þess, horfa til framtíðar og móta skýra heildarsýn fyrir íþróttasvæði og íþróttamannvirki bæjarins. Það er brýnt að bæjaryfirvöld kalli skólana, sundfélagið og ÍA að borðinu sem fyrst til að taka ákvarðanir um hvar og hvenær ný innisundlaug verður byggð. Uppbygging hennar þarf að hefjast á næstu árum.Ný innisundlaug mun ekki eingöngu nýtast sundfélaginu, heldur er hún mikilvæg fyrir kennslu skólasunds, ungbarnasunds og leikfimi aldraðra. Golf er önnur almenningsíþrótt sem hefur ótvírætt lýðheilsugildi. Golfvöllurinn er tvímælalaust ein af perlum Akraness og hefur mikið aðdráttarafl. Horfa þarf til framtíðar golfvallarins, uppbyggingar hans og stækkunar með það fyrir augum að hann haldi stöðu sinni sem einn af allra bestu völlum landsins. Með skýrri framtíðarsýn og markvissum skrefum í rétta átt getum við tryggt að Akranes verði áfram eitt öflugasta íþróttasamfélag landsins. Við Akurnesingar eigum ekki að bera okkur saman við sveitarfélög þar sem staðan er slæm. Við eigum að stefna að því að vera fyrirmyndin og nýta þau tækifæri sem felast í bænum okkar með því að vekja athygli á Akranesi sem góðum stað fyrir fyrirtæki. Við þurfum að vera skapandi í hugsun með það að markmiði að renna stoðum undir fjölbreytt, nútímalegt atvinnulíf, skapandi störf og ferðaþjónustu sem byggir á sérstöðu staðarins.Einföldum leyfisferli og regluverk, aðstoðum framsækið fólk að fara af stað með hugmyndir eða framkvæmdir. Horfum á hvaða áhrif það hefur á daglegt líf bæjarbúa, grípum tækifærin sem skapast en finnum jafnframt lausnir á þeim hindrunum sem gætu komið upp. Þannig getum við haldið áfram að byggja upp öflugt samfélag og verið fyrirmynd, sem önnur sveitarfélög bera sig saman við.Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið var að flytja á Akranes, hér vil ég búa og leggja mitt að mörkum fyrir samfélagið, fjölskylduna mína og bæinn minn. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar