Viðskipti erlent

OpenAI kippir Sora úr sam­bandi

Samúel Karl Ólason skrifar
OpenAI fer væntanlega á markað seinna á þessu ári og virðast forsvarsmenn fyrirtækisins vera að taka til í rekstrinum.
OpenAI fer væntanlega á markað seinna á þessu ári og virðast forsvarsmenn fyrirtækisins vera að taka til í rekstrinum. AP/Michael Dwyer

Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins.

Þær breytingar fela meðal annars í sér að einbeita rekstri fyrirtækisins að vörum og þjónustu sem ætlað er að auka framleiðni og geta verið notaðar af bæði fyrirtækjum og einstaklingum, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Þar er um að ræða kerfi sem notendur geta notað til að auka skilvirkni, greina gögn og kóða fyrir sig, svo eitthvað sé nefnt.

Með því vilja forsvarsmenn fyrirtækisins fara í meiri samkeppni við fyrirtækið Anthropic, sem hefur náð miklum árangri á sviði framleiðni með þjónustunni Claude.

Sex mánuðir eru síðan smáforritið Sora var gert aðgengilegt notendum og hefur það notið töluverðra vinsælda en þó sérstaklega í upphafi. Samkvæmt frétt CNBC kostaði þjónustan þó OpenAI mikla peninga en innan veggja fyrirtækisins er unnið að því að draga úr kostnaði í aðdraganda væntanlegs hlutafjáruppboðs seinna á þessu ári.

WSJ segir þar að auki að starfsmenn OpenAI hafi verið hissa á því hve stórum hluta þeirrar reiknigetu sem fyrirtækið hefur aðgang að var varið í Sora, þar sem fátt benti til þess að mikil eftirspurn hafi verið eftir þjónustunni. Nokkrar vörur og þjónustur hafa verið lagðar til hliðar að undanförnu og þá að miklu leyti vegna takmarkaðrar reiknigetu og skorts á gagnaverum.

Fyrirtækið er metið á 730 milljarða dala. Það samsvarar um 90,9 billjónum króna (tólf núll).

Altman sagði starfsmönnum að þeir sem unnið hefðu að Sora myndu snúa sér að öðrum verkefnum sem gætu reynst hagkvæmari. Nefndi hann sérstaklega stjórnun vélmenna.

Ákvörðunin felur í sér að Disney mun ekki fjárfesta milljarði dala í OpenAI en í staðinn átt gervigreindarfyrirtækið að fá leyfi til að gera notendum Sora kleift að nota persónur Disney í myndböndum.


Tengdar fréttir

Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck

Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð.

Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki

Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum.

Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit

Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna.

Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google

Sam Altman, forstjóri OpenAI, fyrirtækisins sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið sagði starfsmönnum sínum í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins væru að hringja viðvörunarbjöllum þar. Búið væri að lýsa yfir neyðarástandi og er það vegna aukinnar samkeppni frá öðrum fyrirtækjum á sviði gervigreindar, sérstaklega vegna samkeppni frá Google.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×