Real Madrid skoðaði vitlaust hné hjá Mbappé og gerði illt verra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 21:30 Kylian Mbappé var slæmur í vinstra hnénu en ekki í því hægra. Getty/Alberto Gardin Hnémeiðsli franska framherjans Kylian Mbappé voru ekki rétt rannsökuð í desember þar sem Real Madrid skoðaði rangt hné, að sögn The Athletic.
Framherji Real Madrid hefur glímt við verki í vinstra hné stóran hluta tímabilsins. Að sögn The Athletic var hið gagnstæða hné, það er að segja hægra hné Frakkans, skannað þegar meiðslin áttu að vera skoðuð í desember. Mbappé hélt þá áfram að spila. Það var ekki fyrr en í lok desember sem ný skönnun var gerð, í þetta sinn á meidda vinstra hnénu. Stjörnuframherjinn missti af leiknum gegn Betis 4. janúar áður en hann spilaði í fimm af næstu sex deildarleikjum. Eftir það fylgdu fimm leikir til viðbótar á hliðarlínunni, aftur vegna hnévandamála. View this post on Instagram A post shared by The Athletic | Football (@theathleticfc) Nú segir Mbappé að hann sé laus við meiðsli. Þetta sagði hann þegar hann hitti fjölmiðla á viðburði í París á mánudag. „Hnéð á mér er í lagi og það er alltaf að batna,“ sagði Kylian Mbappé við AS. „Ég er hundrað prósent heill heilsu núna. Ég veit að það hafa verið miklar vangaveltur um þetta og ýmis ósannindi hafa verið sögð,“ bætti hann við án þess að tilgreina neitt nánar,“ sagði Mbappé. Mbappé er í þessari viku hluti af franska landsliðshópnum sem mætir Brasilíu og Kólumbíu í undirbúningsleikjum fyrir HM. Þrátt fyrir meiðslin og fjarveruna hefur Mbappé skorað 38 mörk í aðeins 35 leikjum í öllum keppnum með Real Madrid á leiktíðinni þar af þrettán mörk í níu leikjum í Meistaradeildinni.
Spænski boltinn Real Madrid CF HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira