Lily Allen orðin að listaverki Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. mars 2026 07:02 Frægðarsól Lily Allen hefur sjaldan skinið skærar. Arnold Jerocki/Getty Images for Valentino Breska poppstjarnan Lily Allen átti sögulega endurkomu inn í tónlistina þegar hún gaf út hráu og opinskáu plötuna West End Girl í fyrra. Þar skefur hún ekkert af hlutunum og syngur um átakanlegt samband og sambandsslit sín og leikarans David Harbour.
Platan hefur náð til ótal hlustenda um allan heim en Allen hefur verið á tónleikaferðalagi um allt Bretland og það seldist upp á alla tónleika þar á örfáum sekúndum. Hún stóð fyrir tveimur stórskemmtilegum tónleikum í Soho hverfinu í London um helgina þar sem blaðamaður lét sig ekki vanta. Hún talaði ekkert við áhorfendur en lék sér við salinn með glottum, afklæðnaði og flippi og tók plötuna frá upphafi til enda. View this post on Instagram A post shared by Lily Allen (@lilyallen) Salurinn söng með hverju einasta lagi og voru þetta einhverjir skemmtilegustu tónleikar sem undirrituð hefur sótt. Beinskeyttir í anda Lily Allen. Lily Allen er fædd árið 1985 og skaust upp á stjörnuhimininn árið 2006 þegar hún gaf út kaldhæðna smellinn Smile og plötuna Alright, Still. Hún fylgdi því vel eftir með vinsælu plötunni It's Not Me, It's You árið 2009 en þar er að finna söguleg lög á borð við Fuck You, The Fear, 22 og Not Fair. Níu árum síðar reyndi hún á endurkomu með plötunni No Shame við dræmar undirtektir en platan flaug ekki mjög hátt hjá hlustendum. Sjö árum seinna var heimurinn sannarlega tilbúinn fyrir ástarsorg Allen þar sem hún syngur hispurslaust um opið hjónaband og hjákonur Stranger Things stjörnunnar Harbour. Það má jafnvel segja að frægðarsól söngkonunnar hafi sjaldan skinið skærar, þá sérstaklega því þessar vinsældir virðast hafa komið henni í opna skjöldu. Á West End Girl syngur hún meðal annars um að hafa eitt sinn verið smá fræg en það hafi verið fyrir löngu og hve ömurlega henni leið lengi í hjónabandi sínu. Nú er Allen orðin svo mikil stjarna að hún hangir á vegg á einu virtasta safni London. Fyrir tónleikana var hún gestur á The National Portrait Gallery í London og var tilefnið vægast sagt elegant. View this post on Instagram A post shared by Lily Allen (@lilyallen) Plötuumslagið fyrir plötuna West End Girl er eftirprent af olíumálverk eftir spænsku listakonuna Nieves González þar sem Lily Allen situr á stól í blárri og hvítri doppóttri úlpu og doppóttum stígvélum. Aðdáendur söngkonunnar voru einmitt duglegir að klæðast doppum á tónleikunum sem undirstrikar áhrif hennar. Verkið er nú í eigu Allen en hún lánaði safninu það og var viðstödd þegar það var afhjúpað, tignarlegt á stórum vegg safnsins. View this post on Instagram A post shared by National Portrait Gallery (@nationalportraitgallery) Hún lét þetta þó að sjálfsögðu ekki stíga sér til höfuðs. „Fólk elskar að ofnota orðið goðsagnakennt. Ekki ég á National Portrait Gallery,“ gantaðist Allen með á Instagram.
Bretland Tónlist Menning Ástin og lífið Myndlist Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Sjá meira