Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. mars 2026 13:20 Fyrrverandi leikskólastjóri telur best að venja ungabörn strax á koppinn til að forðast erfiðleika síðar meir. Getty Elín Erna Steinarsdóttir, leikskólastjóri á eftirlaunum, segir foreldra ungabarna getað sparað sér mikinn bleyjukostnað, leiðindi og erfiðleika með einu einföldu ráði. Áður en barnið er búið að læra að „gera öll sín stykki í bleyjuna“ eigi að setja barnið strax á koppinn.
Elín Erna skrifar um þessa aðferðafræði í aðsendu skoðanagreininni „Að venja barn af bleyju“ á Vísi sem hún beinir til verðandi foreldra og þeirra sem eiga ungabörn. „Aðferðin er einföld og felst í því að venja barnið á kopp strax þegar barnið getur haldið höfði og helst ekki seinna en þegar það getur setið sjálft. Það er lítið mál að hafa koppinn á skiptiborðinu og halda undir handarkrika barnsins og spjalla við það smá stund til að venja barnið á að koppurinn er hluti af lífinu,“ skrifar Elín í greininni. Elín Erna er fyrrverandi leikskólastjóri. Mikilvægt sé að barnið sé sett á koppinn strax þegar það vaknar af blundi því þá muni undirmeðvitundin fljótt tengja koppinn við það að pissa. Við það að pissa eftir blundinn venjist barnið því að vera með þurra bleyju. „Þegar barnið fer að borða fasta fæðu og hægðir fara að formast verða þær oft reglulegri og sjá má merki um að barnið sé að kúka. Þá er hægt að setja það á koppinn sem það er orðið vant að nota og fljótt finnur barnið að það er auðveldara að kúka í koppinn þannig að oftast gengur þetta vel,“ skrifar hún. Engin krafa gerð á barnið „Ég hef heyrt raddir um að ekki sé hollt fyrir svo ung börn að sitja á koppi, en málið er að barnið þarf aldrei að sitja á koppnum nema smá stund því það mun pissa fljótt eftir blund og ef það pissar ekki fljótlega er það væntanlega búið að pissa. Aðrir segja að geta barns til að stjórna þvaglátum náist ekki fyrr en um tveggja ára aldur og ekki eigi að gera kröfu til barns að gera meira en það hefur þroska til,“ skrifar Erna í greininni. „Svar mitt við því er að aldrei er gerð nein krafa á barnið heldur, þvert á móti. Það lærir að stjórna þvaglátum án þess að vita af því, það mun aldrei mótmæla koppnum, aldrei upplifa þreytta og pirraða foreldra sem eru að reyna að selja barninu sínu að allt í einu eigi það að breyta venjum sínum og setjast á óþægilegan kopp eða klósettsetu,“ skrifar hún en fréttastofa Sýnar ræddi árið 2023 við tvær mæður um bleyjulaust uppeldi. Erna segir að mörg börn sem eru orðin vön bleyjum mótmæli því harðlega og eigi erfitt með að slaka á og gera stykkin sín við nýjar aðstæður. „Betra er að sleppa við það og eyða dýrmætum tíma með barninu við uppbyggilegri hluti, s.s. lestur, spjall, spil og aðra skemmtilega leiki,“ skrifar Erna að lokum og óskar foreldrum og börnum þeirra svo góðs gengis.
Börn og uppeldi Fjölskyldumál Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira