Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir skrifar 24. mars 2026 07:46 „Bókasafnið mitt er menningarmiðstöð og félagsmiðstöð íbúa… Við viljum hlúa að fólkinu okkar og lögð er áhersla á persónulega þjónustu til allra.“Þetta eru tilvitnanir í nýbirta grein eftir forstöðumann Bókasafns Kópavogs. Þar lýsir hún sívaxandi samfélagslegu hlutverki bókasafna og ört vaxandi aðsókn að safninu. Um árabil hefur Bókasafn Kópavogs haft á dagskrá sinni að fá fjárheimildir til að bókasafn sem stenst nútímakröfur geti risið í efri byggðum. Þar hefur íbúum fjölgað mest á undanförnum áratugum og vegalengdir frá efri byggðum til menningarbygginganna í gamla miðbæ Kópavogs eru langar. Eina bókasafnið austan Reykjanesbrautar er í Lindaskóla, tæplega 220 fermetrar að gólffleti. Þar stendur til að leggja almenningsbókasafnið niður á næsta ári. Þótt safnið hafi gegnt hlutverki gagnvart íbúum þá hefur aðstaðan þar aldrei nægt til að láta draumana um bókasafn sem menningar- og félagsmiðstöð fyrir íbúa efri byggða rætast. Öll framboð í Kópavogi hafa hingað til lagt áherslu á að næsta stóra verkefni í bókasafnsmálum sé í efri byggðum. Sú áhersla hefur ítrekað verið staðfest í lista- og menningarráði og síðar menningar- og mannlífsnefnd. Í málefnasamningi meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks fyrir þetta kjörtímabil, segir að tryggja eigi aukið aðgengi allra bæjarbúa að viðburðum og fjölbreyttu menningarstarfi í öllum hverfum bæjarins og að menningarkjarnar verði starfræktir í efri byggðum samhliða starfsemi menningarhúsanna við Hamraborg. Nú tilkynnir Kópavogsbær hins vegar að ekki sé stefnt að opnun nýs almenningsbókasafns í Kórnum fyrr en árið 2029, í lok næsta kjörtímabils. Þar á að verða bókasafn á 175 fermetrum, sem er enn minna en núverandi Lindasafn. Þetta á að verða þriðja bókasafnið í bænum og bjóða á upp á menningarviðburði eftir því sem húsrúm leyfir. Í sömu tilkynningu bæjarins kemur fram að bókasafn númer tvö eigi að opna í Smáralind strax á næsta ári. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti að gera 10 ára óuppsegjanlegan leigusamning um Vetrargarðinn, 900 fermetra með margfaldri lofthæð sem gerir alls kyns afþreyingu mögulega í menningarmiðstöð sem opnuð verður á næsta ári. Fyrirheitin gagnvart efri byggðum hafa gufað upp, eina bókasafnið sem raunverulega er í augsýn verður vestan Reykjanesbrautar, steinsnar frá aðalbókasafninu í Hamraborg. Meirihluti sem er að ljúka kjörtímabili bindur hendur bæjarins til áratugar án nokkurs samráðs við minnihlutann í bæjarstjórn og án fullnægjandi undirbúnings. Verkefnið sem kostar bæjarsjóð nær tveimur milljörðum en einum er þróað í samstarfi við eigendur Smáralindar og á að „styrkja Smáralind sem áfangastað þar sem verslun, þjónusta, matur og menning fléttast saman í heildstæða upplifun“. Hönnunarsamkeppni um rýmið lét Smáralind gera og Kópavogsbær gengur inn í leigusamning sem er sniðinn að verslunum í Smáralind. Leigusamningurinn skyldar alla leigutaka til dæmis til samskonar opnunartíma og þátttöku í sameiginlegum rekstri sem vandséð er að bókasafn Kópavogs hafi hag af. Augljóst er hver ávinningurinn er fyrir rekstur Smáralindar. Vetrargarðurinn, sem lengi hefur verið vannýttur og erfiður í útleigu, fær hlutverk með tilkomu bókasafns og menningarstarfs, sem bæjarsjóður Kópavogs kostar. Samstarf um undirbúning málsins var hvorki haft við bæjarráð né bæjarstjórn. Minnihlutinn fékk fyrst upplýsingar um tillögur og teikningar þegar málið kom til afgreiðslu. Beiðni um frest til að kynna sér málið var synjað og fjölmörgum málefnalegum spurningum er ósvarað. T.d. hljótum við að spyrja hvort bókasafnsstarfi sé endilega fengur í þeim milljónum gesta sem sækja Smáralind heim eða hvort fjöldinn dregur úr líkum á að íbúar í Kópavogi skynji bókasafnið sitt sem heimili að heiman eins og forstöðumaðurinn lýsti því svo fallega í grein sinni. Forgangsröðunin í þessu bókasafnsmáli staðfestir enn og aftur hversu mikilvægt það er fyrir Kópavogsbúa að meirihlutaskipti verði í bæjarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum. Svona á hvorki að fara með ábyrgð, orðheldni né fé bæjarbúa. Valdhroki er alltaf vondur. Höfundur er oddviti Vina Kópavogs í bæjarstjórn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar