Yngsti sigurvegarinn í sögu HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2026 20:30 Cooper Lutkenhaus fagnar sigri sínum með bandaríska fánann. Getty/Marcel ter Bals Bandaríkjamaðurinn Cooper Lutkenhaus varð yngsti karlkyns sigurvegari í sögu heimsmeistaramótsins innanhúss í frjálsum íþróttum þegar hann sigraði í 800 metra hlaupi í Póllandi um helgina.
Þessi sautján ára gamli Texasbúi afrekaði þetta þegar hann tryggði sér gullið í 800 metra hlaupinu, á undan Belgíumanninum Eliott Crestan. Lutkenhaus verður ekki átján ára fyrr en 19. desember og sló því fyrra met yfir yngsta sigurvegara með töluverðum mun. Mohammed Aman frá Eþíópíu var átján ára og 61 dags gamall þegar hann sigraði á HM innanhúss árið 2012. Það var einnig í 800 metra hlaupi. 𝗛𝗜𝗦𝗧𝗢𝗥𝗬 𝗔𝗧 𝟭𝟳 🤯🥇1:44.29. Cooper Lutkenhaus becomes the youngest World Indoor Champion in history.What a debut.#TeamUSATF | #WorldIndoorChamps pic.twitter.com/K21JJyXWQC— USATF (@usatf) March 22, 2026 „Ég fór út á brautina og hugsaði með mér að ég væri kannski ekki sigurstranglegastur en þegar maður er kominn í úrslit á maður alltaf möguleika á að vinna,“ sagði þessi hávaxni sautján ára unglingur eftir gullhlaupið. Lutkenhaus átti þátt í því að Bandaríkin voru efst á verðlaunatöflunni á HM innanhúss með fimm gullverðlaun alls. Bandaríski unglingurinn hefur þegar látið að sér kveða utanhúss. Hann setti heimsmet í flokki átján ára og yngri með því að ná tímanum 1:42,27 mín. á bandaríska meistaramótinu síðastliðið sumar. Það tryggði honum þátttökurétt á HM í Tókýó síðasta haust. Þar féll hann úr keppni í undanrásum eftir að hafa lent í sjöunda sæti í sínum riðli. WATCH: 17-year-old Cooper Lutkenhaus 🇺🇸 becomes the youngest WORLD INDOOR CHAMPION EVER as he wins the 800m gold medal at the World Indoor Championships in 1:44.24. 🥇 pic.twitter.com/SA6FXj7Mf4— Chris Chavez (@ChrisChavez) March 22, 2026
Frjálsar íþróttir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Sjá meira