Forgangsröðun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir skrifar 23. mars 2026 15:00 Forgangsröðun í öldrunarþjónustu er eitt af brýnustu viðfangsefnum nútíma heilbrigðis- og velferðarkerfa, í ljósi ört vaxandi hlutfalls eldra fólks í samfélaginu. Lykilatriði þeirrar forgangsröðunar er hvernig tryggja megi heilbrigða öldrun, stuðla að sjálfstæði einstaklinga og nýta takmarkaðar auðlindir á sem skilvirkastan hátt. Meginstefið ætti að vera að færa þjónustuna nær fólkinu sjálfu, með sérstakri áherslu á að styðja við það að eldast heima. Hugmyndin um „að eldast heima“ (e. ageing in place) felur í sér að einstaklingar geti búið sem lengst í eigin heimahúsi með viðeigandi stuðningi. Rannsóknir sýna að heimilið veitir öryggi, aukið sjálfræði og betri lífsgæði en stofnanir, sérstaklega fyrir þá sem búa við skerta færni. Fólk þekkir sitt nærumhverfi, sem auðveldar daglegt líf og eykur sjálfstæði. Þessi nálgun krefst þó markvissrar uppbyggingar þjónustu í heimahúsum, þar sem þörfum einstaklinga er mætt á heildrænan hátt. Ein af stærstu áskorunum öldrunarþjónustunnar er hrumleiki (e. frailty), sem er stigvaxandi ástand sem dregur úr líkamlegri og andlegri getu einstaklinga. Hrumleiki eykur líkur á alvarlegum heilsufarsvandamálum og kallar á aukna þjónustu. Hrumleiki er þó mögulega viðsnúanlegur og því er mikilvægt að forgangsraða forvörnum og endurhæfingu sem miða að því að viðhalda virknigetu eldra fólks eins lengi og kostur er. Með þessum áherslum má draga úr þörf fyrir dýrari úrræði síðar, svo sem sjúkrahúsinnlagnir eða vistun á hjúkrunarheimilum. Í þessu samhengi legg ég áherslu á að hið opinbera fjárfesti af hugrekki og festu í kostnaðarminni þjónustu á fyrri stigum. Heimaþjónusta, heimahjúkrun, dagþjálfun og endurhæfing eru dæmi um úrræði sem geta haft veruleg áhrif á lífsgæði og sjálfstæði einstaklinga, á sama tíma og þau draga úr álagi á dýrari þjónustustig. Þetta krefst þó skýrrar stefnumótunar og forgangsröðunar í opinberum fjárveitingum. Mannauður er lykilþáttur í allri öldrunarþjónustu. Skortur á faglærðu starfsfólki er viðvarandi vandamál og hefur bein áhrif á gæði þjónustunnar. Hlutfall faglærðs starfsfólks á hjúkrunarheimilum okkar er langt undir alþjóðlegum viðmiðum. Sú staðreynd kallar á aðgerðir um bætt kjör og starfsaðstæður í öldrunarþjónustu en ekki síður um aukna menntun, þjálfun og sérhæfingu starfsmanna. Sérstaklega þarf að efla heimahjúkrun og þróa sérhæfð heimateymi sem geta sinnt flóknum þörfum einstaklinga í heimahúsum, með þjónustu allan sólarhringinn. Samþætting þjónustu er annað lykilatriði í forgangsröðun. Í dag einkennist kerfið enn af svokölluðum „sílóum“, þar sem mismunandi þjónustueiningar starfa aðskildar hver frá annarri. Þetta leiðir til skorts á yfirsýn og samhæfingu, sem bitnar á notendum þjónustunnar. Með aukinni samvinnu, sameiginlegum upplýsingakerfum og betri samskiptum milli fagaðila má bæta þjónustuna verulega. Samþætting er ekki aðeins hagræðing, heldur fjárfesting til framtíðar. Þjónusta við veikasta hópinn, þá sem búa við mikinn hrumleika og flóknar þarfir, krefst sérstakrar athygli. Hefðbundin úrræði eins og bráðamóttökur eða varanleg vistun á hjúkrunarheimilum leysa ekki allan vandann. Þörf er á aukinni sérhæfðri heimaþjónustu, aukinni viðveru fagfólks á heimilum og einstaklingsmiðaðri nálgun. Stuðningur við aðstandendur er oft vanmetinn þáttur í öldrunarþjónustu. Aðstandendur gegna lykilhlutverki í umönnun eldra fólks, en standa oft frammi fyrir miklu álagi og skorti á stuðningi. Rannsóknir sýna að þeir kalla eftir meiri athygli, hlustun og úrræðum sem taka mið af þeirra þörfum. Með því að styrkja aðstandendur má bæta bæði lífsgæði þeirra og þeirra sem þeir annast. Við munum áfram þurfa á hjúkrunarrýmum að halda, en hlutverk hjúkrunarheimila eru að breytast og það er mikilvægt að þróa þau áfram í takti við þær breytingar. Í dag flyst fólk síðar inn á hjúkrunarheimili og dvelur þar skemur, en jafnframt er fólk þar veikara en áður og með flóknari þarfir. Þetta kallar á ríkari áherslu á líknar- og lífslokameðferð, sem og aukna sérhæfingu starfsfólks. Hjúkrunarheimili eru í reynd að þróast hratt í átt að líknarstofnunum, sem krefst nýrrar hugsunar um mönnun og þjónustuframboð. Sýnt hefur verið fram á að sérhæfð innlagnarrými eru mikilvægir hlekkir í viðbrögðum og viðsnúningi á auknum veikindum eldra fólks í heimahúsum. Endurhæfing, meðferðarinnlagnir og líknarrými á hjúkrunarheimilum er fjársjóður sem við eigum inni í okkar uppbyggingu. Til að slík úrræði nýtist sem best þurfa þau að vera aðgengileg án nokkurra tafa, beint úr heimahúsi. Forgangsröðun í öldrunarþjónustu snýst um að finna jafnvægi milli þarfa einstaklinga, getu kerfisins og nýtingar fjármuna. Með því að leggja áherslu á forvarnir, heimaþjónustu, samþættingu og mannauð má skapa sjálfbært kerfi sem mætir þörfum eldra fólks með virðingu og reisn. Það er sameiginlegt verkefni og ábyrgð okkar, samfélagsins alls, sem við höfum ekki efni á að skorast undan. Miðvikudaginn 25. mars verður haldin ráðstefna Öldrunarráðs Íslands með yfirskriftinni Eldri borgarar: Hvar stöndum við – hvert stefnum við? Þar mun eiga sér stað mikilvægt samtal um áherslur og framtíð í öldrunarmálum. Nánari upplýsingar má finna á https://www.oldrunarrad.is/ Höfundur er forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun