Lionel Jospin er látinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. mars 2026 12:40 Lionel Jospin var forsætisráðherra Frakka í fimm ár. EPA Lionel Jospin, fyrrverandi formaður Sósíalistaflokks Frakka, er látinn 88 ára að aldri. Hann var forsætisráðherra Frakka í fimm ár en sagði skilið við stjórnmálin eftir að hafa tapað í forsetakosningunum árið 2002.
Jospin fæddist árið 1937 og bjó með foreldrum sínum í úthverfi Parísar. Hann gekk í stjórnmálafræðiskólann Sciences Po og École nationale d'administration og starfaði um tíma í utanríkisráðuneyti Frakka. Síðar tók hann til starfa við að kenna hagfræði við háskóla í París. Reuters greinir frá andlitinu. Áður en Jospin gekk í Sósíalistaflokkinn árið 1971 var hann meðlimur í Trotskyist-hópnum og Alþjóðlegu kommúnistasamtökunum. Hann tók við embætti varaformanns Sósíalistaflokksins um tíma og síðan embætti formanns árin 1981 til 1988. Sjö árum síðar, 1995, tók hann aftur við embætti formanns. Jospin var forsetaefni flokksins í forsetakosningum Frakka 1995 en tapaði fyrir Jacques Chirac, frambjóðanda á miðjunni. Tveimur árum síðar boðaði Chirac þingkosningar þar sem vinstriflokkarnir náðu meirihluta og tók Jospin við embætti forsætisráðherra. Jospin var forsætisráðherra í fimm ár og bauð sig aftur fram til forseta árið 2002. Því var spáð að Jospin og Chirac myndu bera sigur úr býtum í forvalskosningunum. Í forvalskosningunum laut hann hins vegar óvænt í lægra haldi fyrir Jean-Marie Le Pen, stofnanda franska öfgahægriflokksins Þjóðfylkingarinnar. Jospin fékk 16,18 prósent atkvæða en Le Pen 16,86 prósent. Le Pen tapaði síðan fyrir Chirac í seinni umferð forsetakosninganna. Nokkrum mínútum eftir að það var ljóst að Jospin hefði tapað ávarpaði hann stuðningsmenn sína og sagðist vera hættur í stjórnmálum. Jospin giftist fyrst Elisabeth Dannenmuller árið 1973 og eignuðust þau saman börnin Hugo og Evu. Þau skildu árið 1992 og giftist hann svo Sylviane Agacinski árið 1994.
Andlát Frakkland Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira