Kveikjum neistann í Lindaskóla Margrét Ármann og Nanna Þóra Jónsdóttir skrifa 21. mars 2026 07:32 Undanfarin þrjú ár hefur Lindaskóli unnið markvisst eftir hugmyndafræðinni Kveikjum neistann á yngsta stigi skólans. Markmiðið er skýrt; að efla námsgetu, líðan og sjálfstraust nemenda. Kveikjum neistann byggir á rannsóknum, skýrum matsaðferðum og leggur áherslu á hugarfar, áskoranir miðað við færni og ástríðu. Hjá okkur í Lindaskóla hefur þessi nálgun skilað mjög góðum árangri, bæði í námslegum og félagslegum þáttum skólastarfsins. Hugmyndafræðin byggir á kenningum þekktra vísindamanna á sviði náms og þroska, svo sem Dehaene og Snowling um læsi og lestur, Dweck um gróskuhugarfar, Csikszentmihalyi um flæði og Ericsson um markvissa þjálfun. Töluverð umræða hefur skapast í þjóðfélaginu varðandi lestrarkennslu og læsi og er það af hinu góða. Þar hefur gjarnan verið bent á að engin þörf sé á enn einni lestraraðferðinni og að vinna eigi samkvæmt vísindum og nýjustu fræðum. Kveikjum neistann er ekki enn ein lestraraðferðin. Í lestrarkennslunni er unnið eftir nákvæmri hljóðaaðferð þar sem farið er frá hinu einfalda til hins flókna með hjálp LESTU nálgunarinnar þar sem þyngdarstigin eru þrjú. Lykillinn er að skapa áhugahvöt gegnum áskoranir miðað við færni. Matstæki sem notuð eru t.d. í lestri veita kennurum fyrr og nákvæmari upplýsingar um stöðu nemenda en áður. Þar með er mögulegt að grípa snemma inn í og veita markvissan stuðning. Í Kveikjum neistann er mikil áhersla lögð á að vinna með hugarfar nemenda. Nemendur eru hvattir til að líta á áskoranir sem tækifæri til náms og þroska, ekki sem hindranir. Verkefni og þjálfun eru miðuð við færni hvers og eins, þannig að allir nemendur fá áskoranir við hæfi, auk þess sem verkefni eru áhugahvetjandi. Áhersla er á flæði, að jafnvægi myndist milli færni og áskorunar og stuðlað er að gróskuhugarfari í öllum skólanum með kennslu á hugtökum og þjálfun. Ástríðutímar eru einn af lykilþáttum verkefnisins og hafa þeir reynst afar dýrmætir. Þar fá nemendur tækifæri til að vinna út frá eigin áhugasviðum, sem hefur haft jákvæð áhrif á félagslegan þroska, samskipti og samvinnu nemenda. Aukinn fjöldi kennara kemur að þessum tímum sem styrkir tengsl nemenda við fleiri fullorðna og eykur fjölbreytni í kennsluháttum. Kennarar sem hafa tekið þátt í verkefninu eru sammála um gildi þess og vilja halda áfram á þessari vegferð. Kveikjum neistann í Lindaskóla byggir á sex lykilþáttum: læsi, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu, ástríðu og hugarfari. Samspil þessara þátta skapar heildstæða nálgun sem styður við námsárangur og vellíðan barna – og kveikir neista sem getur fylgt þeim langt inn í framtíðina. Höfundar eru Margrét Ármann, skólastjóri Lindaskóla, og Nanna Þóra Jónsdóttir, sérkennari og verkefnastjóri í Lindaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grunnskólar Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar