Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 18:30 Ibrahima Konaté sést hér eftir sigur Liverpool á Galatasaray þar sem enska félagið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Getty/Liverpool FC Liverpool brást mjög harkalega við kynþáttafordómum gagnvart leikmanni félagsins eins og sést vel í harðorðri yfirlýsingu enska úrvalsdeildarfélagsins.
Franski miðvörðurinn Ibrahima Konaté er sagður hafa orðið fyrir kynþáttafordómum af hálfu nettrölla. Liverpool kallar áreitnina „ómannúðlega, huglausa og sprottna af hatri“. Enska félagið sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem kynþáttafordómarnir sem beindust að varnarmanninum Konaté eru fordæmdir harðlega. „Þessi hegðun er algjörlega óásættanleg. Hún er ómannúðleg, huglaus og sprottin af hatri. Kynþáttafordómar eiga engan stað í fótbolta, engan stað í samfélaginu og engan stað neins staðar – hvorki á netinu né annars staðar,“ skrifar félagið. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Football Club (@liverpoolfc) Því næst er áréttað að fótboltamenn séu líka bara manneskjur. „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk. Misnotkunin sem beinist stöðugt að leikmönnum, oft falin á bak við nafnlausa aðganga, er smánarblettur bæði á íþróttinni og þeim miðlum sem leyfa henni að viðgangast,“ skrifar Liverpool. „Allur fótboltaheimurinn verður að standa saman og segja, skýrt og án málamiðlana, að þetta verði ekki liðið. Fordæmingarorð ein og sér duga ekki,“ heldur félagið áfram. Stjórn Liverpool krefst líka tafarlausra aðgerða frá stóru samfélagsmiðlafyrirtækjunum. „Þessir miðlar hafa valdið, tæknina og úrræðin til að koma í veg fyrir þessa misnotkun, en allt of oft láta þeir hjá líða að gera það. Að leyfa kynþáttahatri að breiðast út óheft er val – og það er val sem heldur áfram að skaða leikmenn, fjölskyldur og samfélög þvert á íþróttina,“ skrifar Liverpool. Félagið áréttar að það muni styðja Konaté og leggja sitt af mörkum til að þeir sem beri ábyrgð verði fundnir. „En byrðin getur ekki haldið áfram að falla á leikmenn og félög að bregðast við eftir að skaðinn er skeður. Núverandi ástandi má ekki leyfast að halda áfram,“ skrifar félagið.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira