Lífið samstarf

Tannheilsa ung­menna veldur á­hyggjum

Kristall+
Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir hefur talað fyrir tannheilsu á samfélagsmiðlum. Hún bendir á glerungseyðingu af völdum orkudrykkja.
Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir hefur talað fyrir tannheilsu á samfélagsmiðlum. Hún bendir á glerungseyðingu af völdum orkudrykkja.

Orkudrykkir skipa æ stærri sess í lífi fólks en sala þeirra hefur farið ört vaxandi síðustu ár. Á síðasta ári óx orkudrykkjamarkaðurinn, sem samanstendur aðallega af sykurlausum drykkjum, um 12,5%.

Samhliða þessari gríðarlegu neysluaukningu orkudrykkja hefur glerungseyðing orðið stærra vandamál hjá yngra fólki. 

„Við erum að sjá meira af ungu fólki koma til okkar þar sem glerungurinn er farinn að láta á sjá sem veldur mér áhyggjum. Þegar glerungurinn er farinn, þá kemur hann ekki aftur,“ segir Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir sem hefur talað fyrir tannheilsu á samfélagsmiðlum undir aðganginum Skagabros. (Skagabros 🦷 (@skagabros) | TikTok)

Það má leiða líkum að því að neysla orkudrykkja hafi aukið á áhyggjur af tannheilsu ungmenna en sér Valdís einhverja lausn á þessu vandamáli? 

„Já, alveg klárlega. Fólk er yfirleitt að drekka þessa orkudrykki til að koma sér í gang, fá koffínið sitt fyrir átök dagsins. 

Það eru til aðrir drykkir, sem eyða ekki glerungi, eins og Kristall+, sem inniheldur 80 mg af koffíni og D-vítamín sem hentar okkur Íslendingum einstaklega vel. 

Ég hef verið að benda fólki á að skipta orkudrykkjum út fyrir Kristal+ til þess að draga úr glerungseyðingu og svo bragðast hann líka sjúklega vel,“ segir Valdís.

Kristall+ inniheldur 80 mg af koffíni auk D-vítamíns.

Kristall+ kom á markað í byrjun árs 2025 og hefur vakið mikla athygli síðan. Drykkurinn var tilnefndur til World Beverage Innovation Awards í fyrra. 

Kristall+ inniheldur 80 mg af koffíni auk D-vítamíns sem er Íslendingum sérstaklega mikilvægt vegna skorts á sólarljósi á veturna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.