Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 18:01 Andy Carroll þegar Kenny Dalglish keypti hann til Liverpool. Getty/John Powell Andy Carroll, fyrrverandi framherji Liverpool og enska landsliðsins, er tekinn við sem bráðabirgðastjóri utandeildarliðsins Dagenham & Redbridge, tveimur vikum eftir að samfélagsmiðlastjarnan KSI keypti hlut og varð meðeigandi í F-deildarfélaginu.
Carroll hefur spilað með liðinu í suðurdeild utandeildarinnar á þessu tímabili en mun nú taka tímabundið við stjórninni eftir að Dagenham rak stjórann Lee Bradbury þrátt fyrir 3-2 sigur á Farnborough á þriðjudag. Sigurinn skilur Dagenham eftir í tólfta sæti í suðurdeild utandeildarinnar og er sex stigum frá umspilssæti. Dagenham & Redbridge confirm that Andy Carroll will take the team on an interim basis 🚨 pic.twitter.com/wJwlYrJbn1— Sky Sports Football (@SkyFootball) March 18, 2026 Fyrsti leikur Carrolls sem stjóri verður á laugardag þegar Dagenham mætir Torquay United, liði sem er undir stjórn Neils Warnock. Brottrekstur Bradbury kemur eftir aðeins sjö mánuði í starfi og fimmtán dögum eftir að KSI keypti tuttugu prósenta minnihluta í félaginu. Í yfirlýsingu frá Dagenham & Redbridge stóð: „Knattspyrnufélagið Dagenham & Redbridge getur staðfest að við höfum slitið samstarfi við aðalliðsstjórann, Lee Bradbury. Við erum Lee afar þakklát fyrir einbeitingu hans, fagmennsku og skuldbindingu á meðan hann starfaði hjá félaginu og fyrir framlag hans, bæði innan og utan vallar, til að koma stöðugleika á félagið síðasta sumar.“ „Andy Carroll mun stýra liðinu tímabundið og frekari upplýsingar verða veittar þegar þar að kemur.“ Carroll glímir á sama tíma við vandamál utan vallar. Fyrr í þessum mánuði lýsti fyrrverandi framherji Liverpool og Newcastle sig formlega saklausan af ákæru um brot á nálgunarbanni og á að koma fyrir rétt á næsta ári. Hinn 37 ára gamli Carroll er sakaður um að hafa ítrekað hringt í fyrrverandi eiginkonu sína, raunveruleikastjörnuna Billi Mucklow, sem hefur komið fram í The Only Way Is Essex. Réttarhöld voru ákveðin 18. janúar 2027 við Chelmsford Crown Court. Club Statement: Lee Bradburyhttps://t.co/xcAba2JDOa— Dagenham & Redbridge (@Dag_RedFC) March 18, 2026
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira