Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Ívar Kristinn Jasonarson skrifar 20. mars 2026 10:00 Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans. Meðaltal vegna orkuvinnslu á heimsvísu er í kringum 440 g/kWst og í Evrópu tæp 200 g/kWst. Meðallosun allrar orkuvinnslu á Íslandi er 7,7 g/kWst. Við hjá Landsvirkjun ætlum þó að gera enn betur og stefnum að því að losun vegna orkuvinnslu okkar verði undir 1 g/kWst árið 2050. Í loftslagsbókhaldinu kemur jafnframt fram að óbein losun í virðiskeðju fyrirtækisins hækkaði um tæp 50% milli ára. Þá hækkun má rekja til losunar vegna framkvæmda en á árinu stóðu m.a. yfir framkvæmdir við Vaðölduver og undirbúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun. Sú losun er að mestu vegna framleiðslu byggingarefna sem í mannvirkin fer og eldsneytisnotkunar verktaka á framkvæmdatíma. Nú er hafið stærsta framkvæmdatímabil í sögu orkufyrirtækis þjóðarinnar. Auk fyrrnefndra verkefna standa vonir til að framkvæmdir við stækkun Sigöldustöðvar og virkjun toppþrýstings á Þeistareykjum hefjist á komandi misserum. Viðbúið er því að losun vegna framkvæmda fyrirtækisins muni aukast enn frekar á komandi árum. Stál, steypa og eldsneyti Langstærstur hluti losunar á framkvæmdatíma virkjana er vegna framleiðslu stáls og steypu og eldsneytisnotkunar verktaka. Við leggjum því sérstaka áherslu á að koma í veg fyrir losun vegna þessara þriggja þátta í framkvæmdum okkar. Við gerum það með því að huga að magni byggingarefna á hönnunartíma mannvirkja og beitum fjárhagslegum hvötum til verktaka til að taka losun gróðurhúsaloftegunda inn í ákvörðun um efnisval og orkugjafa vinnuvéla. Búast má við að losun vegna framkvæmdaverkefna í fyrra hefði verið nokkur þúsund tonnum meiri hefði þessara hvata ekki notið við. Þó framkvæmdir nýrra virkjana auki tímabundið losun vegna starfsemi Landsvirkjunar munu þær skila nýrri endurnýjanlegri orku inn á íslenska orkukerfið. Sú orka mun m.a. leysa jarðefnaeldsneyti í vegasamgöngum af hólmi og styðja við vöxt græns iðnaðar. Þannig verða loftslagsáhrif vegna framkvæmdanna jákvæð þegar hreyflarnir byrja að snúast og orkan skilar sér inn á kerfið. Stærsta framlag til loftslagsmála Orkuvinnsla Landsvirkjunar telst umhverfislega sjálfbær atvinnustarfsemi samkvæmt evrópsku flokkunarkerfi um sjálfbærar fjárfestingar. Í því felst að hún er mótvægi við loftslagsbreytingar og veldur ekki umtalsverðum skaða á öðrum umhverfisþáttum. Með öðrum orðum er rekstur Landsvirkjunar hluti af þeirri starfsemi sem talið er að þurfi að vaxa svo við náum að stemma stigu við loftslagsvánni. Við ætlum að halda áfram að minnka losun þar sem við getum, með sérstaka áherslu á losun vegna framkvæmda, um leið og við öflum meiri endurnýjanlegrar orku sem knýr orkuskipti og loftslagsvæna framtíð. Stærsta framlag Landsvirkjunar til loftslagsmála er orkuvinnslan sjálf. Frekari upplýsingar um loftslagsbókhald Landsvirkjunar er að finna hér: Loftslagsbókhald 2025. Höfundur er sérfræðingur á deild loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar