Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. mars 2026 08:12 Þingmaðurinn Liam McArthur sagði ófyrirgefanlegt að segja nei við frumvarpinu. AP/Neil Pooran Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum.
Lagfæringar höfðu verið gerðar á frumvarpinu til að koma til móts við gagnrýni, meðal annars að takmarka aðgengi við úrskurð lækna um að viðkomandi ætti aðeins um sex mánuði eftir. Flutningsmaður frumvarpisins, Liam McArthur, sagði að það yrði ófyrirgefanlegt að hafna samþykkt þess, þar sem þeim myndi þá fjölga sem lifðu við óbærilegan sársauka og væru tilneyddir til að ferðast erlendis til að fá aðstoð við að deyja. Lögleiðing dánaraðstoðar nýtur mikils stuðnings meðal almennings en andstæðingar frumvarpsins á þinginu sögðust meðal annars hafa áhyggjur af áhrifum þess á samband lækna og sjúklinga og að samþykkt þess myndi setja viðkvæma hópa í hættu. Fatlaðir og aldraðir gætu þannig sætt óbeinum eða beinum þrýstingi um að binda enda á líf sitt. Neðri deild breska þingsins hefur þegar samþykkt áþekkt frumvarp en talið er að það muni ekki komast í gegnum lávarðadeildina.
Skotland Dánaraðstoð Bretland Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira