Sport

„Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola ræddi við Trent Alexander-Arnold eftir sigur Real Madrid í kvöld og enski bakvörðurinn hafði greinilega mjög gaman af því.
Pep Guardiola ræddi við Trent Alexander-Arnold eftir sigur Real Madrid í kvöld og enski bakvörðurinn hafði greinilega mjög gaman af því. Getty/Molly Darlington

Trent Alexander-Arnold missti marga titla til Manchester City á tíma sínum hjá Liverpool en í kvöld hjálpaði hann Real Madrid að senda Manchester City út úr Meistaradeildinni.

Trent ræddi einmitt þetta í samtali við Amazon Prime eftir leikinn sem Real vann 2-1 og þar með 5-1 samanlagt.

„Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim. Þeir hafa hrifsað mörg úrvalsdeildargull af mér og Liverpool,“ sagði Alexander-Arnold eftir leik.

Þjálfari hans hjá Real Madrid var líka ánægður með enska bakvörðinn.

„Trent Alexander-Arnold verður sífellt betri,“ sagði Álvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, við Amazon Prime.

„Ég er svo stoltur af honum,“ bætti Arbeloa við.

Aðspurður hvort Alexander-Arnold ætti að vera í enska landsliðshópnum, sem tilkynntur verður á fimmtudag, bætir Arbeloa við: „Hann á það skilið,“ sagði Arbeloa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×