Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. mars 2026 17:01 Beinir Johannesen, líklegasta lögmannsefnið samkvæmt skoðanakönnunum, er bróðursonur Aksels Johannesen lögmanns. Vísir/Samsett Fimmtudaginn 26. mars ganga frændur okkar í Færeyjum til þingkosninga sem gætu reynst örlagaríkar eins og svo margar. Þinginu var slitið í óþökk stærsta hluta ríkisstjórnarinnar og með svikabragði að mati sumra. Það bætir einnig í dramatíkina að líklegasta lögmannsefnið samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er bróðursonur sitjandi lögmanns.
Tæplega tvær vikur eru til kosninga núna en þær hafa eðlilega fallið örlítið í skugga hinna kosninganna innan danska samveldisins, nefnilega þeirra dönsku, sem fara fram tveimur dögum fyrr. Fréttastofa ræddi við Høgna í Jákupsstovu, fréttamann á Kringvarpi Færeyja, um það helsta. Høgni í Jákupsstovu er fréttamaður og starfar hjá Kringvarpi Færeyja.Aðsend Líkt og fjallað hefur verið um á Vísi var boðað nokkuð óvænt til kosninganna. Kosningar áttu lögum samkvæmt að fara fram í desember en Aksel V. Johannesen lögmaður boðaði til þeirra með stuttum fyrirvara í lok febrúar. Í kjölfar þingkosninga 2022 myndaði hann landsstjórn með hinum fullveldissinnaða Þjóðveldisflokki og miðjuflokknum Framsókn með boðun kosninga þykir Aksel hafa leikið ríkisstjórnarfélaga sína og samráðherra ansi grátt. Allt undir Suðureyjagöngunum Eins og Høgni segir frá hefur stærsta verkefni þessarar landsstjórnar verið frá upphafi að ná sátt um gerð gangna til Suðureyjar sem yrðu einhver stærstu opinberu framkvæmdir í sögu eyjanna með tilheyrandi kostnaði. Að lokum hafi flokkarnir náð satt um að bjóða göngin út en að Framsóknarflokkurinn hafi sett því það skilyrði að samhliða því yrði frumvarp um hækkun ellilífeyrisaldur. „Samkomulagi virtist hafa verið náð en það sem gerðist var þegar áætlunargerðin var samþykkt höfðu þau endurraðað frumvörpunum. Og um leið og áætlunargerðin var samþykkt boðaði lögmaðurinn til kosninga,“ segir Høgni en eftirlaunafrumvarpið á eftir að fara í gegnum aðra og þriðju umræðu á þinginu. „Þetta var svolítið óþokkabragð að vissu leyti. Það lítur þannig út. En maður getur alveg skilið það, hann var undir pressu því öll stéttarfélögin voru æf vegna frumvarpsins um eftirlaunaaldurinn. Það var ekki unnið í samráði við þau. Hann kaus að koma sinni áætlunargerð í gegn og boðaði svo til kosninga. Þannig má segja að hann nái að halda góðu sambandi sínu við stéttarfélögunum. Eða í það minnsta slétta þúfurnar.“ Enn segir Høgni að breið sátt ríki um gerð gangnanna en að útboðið eigi eftir að fara fram en að annað gæti verið uppi á teningnum þegar verðmiðinn kemur í ljós. Jólin gætu orðið vandræðaleg Aðspurður segir Høgni að stefnt gæti í fjölskyldudramatík þar sem leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, hinn 29 ára gamli Beinir Johannesen, er bróðursonur lögmannsins. Beinir Johannesen er formaður Þjóðarflokksins, íhaldssamur flokkur yst á hægri væng færeyskra stjórnmála, sem hefur farið með himinskautum í skoðanakönnunum undanfarna dagana. „Einn borgaralegur og einn jafnaðarmaður [í fjölskyldunni] þannig að það eru alls konar sviptingar. [Þjóðarflokkurinn] er sigurstranglega en það er ekki fyrr en núna síðustu dagana að flokkarnir hafa verið að gefa út stefnuskrár sínar,“ segir Høgni. „Stóra sagan er í raun að Þjóðarflokkurinn sé sigurstranglegastur. Hann er raunar svo sigurstranglegur að það teldist til stórtíðinda ynnu þeir ekki. Enn sem komið er hafa þeir neina vitleysu þannig að þetta gengur eins í sögu hjá þeim. Jafnaðarflokkurinn, sem er flokkur Aksels Johannesen [lögmanns] hefur fært sig til hægri og tveir áberandi þingmenn þeirra sem tilheyrðu vinstri væng flokksins haf ahætt. Í staðinn hafa þeir svo tekið inn athafnamann sem hefur aðeins hægrisinnaðri, borgaralegri skoðanir,“ segir hann. Grænlandsmálin vekja ugg Høgni segir kveða við annan tón fyrir þessar kosningar hvað stefnumál frambjóðendanna varðar en fyrir ári síðan. Það skýrist að mestu leyti af ógninni sem Færeyingar finna fyrir frá Bandaríkjunum. Danska samveldið samanstendur jú af Færeyjum, Danmörku og Grænlandi. Á ríkisráðsfundi í Þórshöfn síðasta sumar sem undirritaður gerðu Færeyingar kröfur um aukið athafnafrelsi í utanríkismálum og fullveldisandi sveif yfir vötnum. „Það er athyglisvert að Færeyingar eru farnir að spyrja meira um það hvað danski herinn sé að gera í Færeyjum. Fyrir fimm árum vildum við helst ekkert vita af þeim, við vildum ekki sjá þá. En nú er meira hugsað um öryggismálin, að fá dróna og þyrlur og kafbáta. Þessir hlutir skipta meira máli en þeir gerðu áður. Og það er líka þess vegna að Þjóðveldi er ekki með sjálfstæði á stefnuskránni,“ segir hann. Niðurstöður síðustu skoðanakönnunar.Kringvarpið Í stað sjálfstæðis er nú að finna svokallaða tjóðarsemju eða þjóðarsátt á stefnuskrá Þjóðveldisflokksins sem gengur út á að breyta eðli samveldisins á þann veg að það samanstandi af þremur jafnréttháum, fullvalda löndum. Samkvæmt nýjustu skðanakönnunum er útlit fyrir æsispennandi kosningavöku þar sem fylgi stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðu er nokkurn veginn jafnt skipt. Þjóðarflokkurinn trónir á toppnum með 29 prósenta fylgi. Þar á eftir kemur Sambandsflokkur Bárðar á Steig Nielsen fyrrverandi lögmanns með rétt tæplega 20 prósenta fylgi og á hælunum á honum er Jafnaðarflokkur lögmannsins með tæplega 19 prósenta fylgi. Þjóðveldi stenur í tæplega 18 prósenta fylgi og hinn stjórnarflokkurinn, Framsókn, er með um sjö prósenta fylgi.
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira