Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 10:31 Pep Guardiola segir að Manchester City megi alls ekki misstíga sig þegar liðið sækir West Ham United heim í kvöld. Annars sé möguleikinn á Englandsmeistaratitlinum úr sögunni. getty/Juan Manuel Serrano Arce Á blaðamannafundi í gær fór Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, ekkert í grafgötur með hversu mikilvægan hann álítur leikinn gegn West Ham United í kvöld vera. Að hans sögn verður City að vinna leikinn, annars verði liðið ekki Englandsmeistari.
City sækir West Ham, sem er í fallsæti, heim í kvöld. Strákarnir hans Guardiola eru í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sextíu stig, sjö stigum á eftir toppliði Arsenal sem hefur leikið einum leik meira en City. Leikur West Ham og City hefst klukkan 20:00 en þá verður leik Arsenal og Everton nýlokið. Svo gæti farið að Arsenal verði með tíu stiga forskot þegar flautað verður til leiks á Lundúnaleikvanginum í kvöld. Guardiola segir að ekkert annað en sigur sé í boði fyrir City í leik kvöldsins. „Núna er það West Ham. Af öllum titlum er erfiðast að verða Englandsmeistari. Við erum enn í baráttunni en ef við töpum er þetta búið,“ sagði Guardiola sem er meðvitaður um að leikur kvöldsins verður erfiður, enda er West Ham í harðri fallbaráttu. „Ég hef alltaf sagt að þegar kemur að síðustu tíu leikjunum eru öll liðin að keppa að einhverju; í fallbaráttu, baráttu um Evrópusæti eða um titilinn. Þú færð ekki annað tækifæri.“ City tapaði 3-0 fyrir Real Madrid á Santiago Bernabéu í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Liðin mætast öðru sinni á Etihad á þriðjudaginn kemur. Leikur West Ham og Manchester City hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira