Innherji

Telur stjórnar­menn þurfa að út­skýra fyrir hlut­höfum breytta af­stöðu til sam­runa

Hörður Ægisson skrifar
Lífeyrissjóðirnir hljóta að þurfa að hafa skoðun á því hvort það hafi að verið skynsamlegt að þeirra mati að slíta samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, eða ekki, segir Bjarni Ármannsson.
Lífeyrissjóðirnir hljóta að þurfa að hafa skoðun á því hvort það hafi að verið skynsamlegt að þeirra mati að slíta samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, eða ekki, segir Bjarni Ármannsson. Iceland Seafood

Fjárfestirinn Bjarni Ármannsson segist „ekki trúa öðru“ en að stjórnir Íslandsbanka og Skaga muni á aðalfundi félaganna í komandi viku gera efnislega grein fyrir því gagnvart hluthöfum af hverju samrunaviðræðum var slitið og kallar eftir því að lífeyrissjóðir hafi skoðun á slíkum „strategískum ákvörðunum.“ Þá er Bjarni, annar stærsti hluthafi Skaga, afar gagnrýninn á að ekki hafi verið upplýst um hvaða fjárfestar voru í samfloti með Heiðari Guðjónssyni þegar óskað var eftir hluthafafundi í Íslandsbanka í því skyni að efna til stjórnarkjörs og segir slíka „leyndarhyggju ekki vera í lagi“ þegar um sé að ræða kerfislega mikilvægan banka.


Tengdar fréttir

„Engar teljandi tafir“ orðið í sam­runa­viðræðum Skaga og Ís­lands­banka

Þrátt fyrir vendingar innan stjórnar Íslandsbanka, sem er núna undir forystu fjárfestisins Heiðars Guðjónssonar, þá segir forstjóri Skaga að „engar teljandi tafir“ hafi orðið í samrunaviðræðum félaganna að undanförnu og samrunatilkynning til að skila inn á borð Samkeppniseftirlitsins sé langt komin. Sumir hluthafar Íslandsbanka hafa gagnrýnt það sem þeim finnst vera óhagstæð verðlagning á bankanum í fyrirhuguðum viðskiptum og á nýafstöðnum hluthafafundi svaraði bankastjórinn því til að ný stjórn hefði „tæki og tól“ til að endurmeta samninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×