Hverju breytir samþætting? Hulda Björk Finnsdóttir og Hákon Sigursteinsson skrifa 11. mars 2026 07:03 Margt starfsfólk Reykjavíkurborgar sem vinnur með börnum og fjölskyldum telur farsældarlögin hafa styrkt samstarf milli kerfa og stuðlað að markvissara vinnulagi og skýrari ábyrgðarskiptingu. Nýtt fyrirkomulag eykur líkurnar á að börn og fjölskyldur fái betri þjónustu en áður og fyrr í ferlinu. Sem hluti af innleiðingu farsældarlaganna hafa bæst við úrræði sem börn og foreldrar geta leitað til án tilvísunar, svokölluð lágþröskuldaþjónusta. Má þar nefna aukið aðgengi barna og ungmenna að ráðgjöfum í Berginu Headspace sem og uppeldisnámskeiðum sem haldin hafa verið í leik- og grunnskólum. Einnig hefur bæst við fjöldi stafrænna verkfæra og námskeiða, til dæmis Samvinna eftir skilnað (SES) sem styður fjölskyldur og börn við að takast á við breyttar fjölskylduaðstæður og áskoranir í tengslum við skilnað eða sambúðarslit. Yfir þúsund börn og foreldrar sóttu námskeið í fyrra Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytt námskeið og stuðningsúrræði fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Á síðasta ári voru til að mynda haldin tugir námskeiða sem yfir 600 foreldrar og rúmlega 400 börn tóku þátt í. Þar á meðal er uppeldisráðgjöf og foreldrafræðsla sem fer fram á heimilum fjölskyldna. Foreldrar sem hafa fengið slíka þjónustu lýsa henni sem gagnlegri, því ráðgjöfin hjálpar til að mynda að samræma uppeldisaðferðir, skapa rútínu á heimilinu og bæta samskipti innan fjölskyldunnar. Raunverulegur ávinningur með farsældarlögunum Foreldrar sem hafa óskað eftir samþættri þjónustu hafa sagt þjónustuna hafa tekið skýrum breytingum eftir tilkomu farsældarlaganna. Þeir foreldrar sem hafa reynslu af því að leita á marga staði eftir þjónustu nefna mikilvægi stuðningsteymis í kringum barnið og fjölskylduna. Þar fer fram markviss samvinna þar sem unnið er eftir áætlun og þjónusta ólíkra stofnana tengd saman. Áður hvíldi mikil ábyrgð á foreldrunum sjálfum, sem skapaði oft streitu. Þeir þurftu að sækja fjölmarga fundi hjá ólíkum stofnunum og endurtaka sömu upplýsingarnar í hvert sinn. Með samþættri þjónustu er ábyrgðin skýrari, þjónustan samfelldari og mun minni líkur á að mál falli á milli kerfa. Höfundar eru verkefnastjórar farsældar barna hjá Reykjavíkurborg Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Börn og uppeldi Barnavernd Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Margt starfsfólk Reykjavíkurborgar sem vinnur með börnum og fjölskyldum telur farsældarlögin hafa styrkt samstarf milli kerfa og stuðlað að markvissara vinnulagi og skýrari ábyrgðarskiptingu. Nýtt fyrirkomulag eykur líkurnar á að börn og fjölskyldur fái betri þjónustu en áður og fyrr í ferlinu. Sem hluti af innleiðingu farsældarlaganna hafa bæst við úrræði sem börn og foreldrar geta leitað til án tilvísunar, svokölluð lágþröskuldaþjónusta. Má þar nefna aukið aðgengi barna og ungmenna að ráðgjöfum í Berginu Headspace sem og uppeldisnámskeiðum sem haldin hafa verið í leik- og grunnskólum. Einnig hefur bæst við fjöldi stafrænna verkfæra og námskeiða, til dæmis Samvinna eftir skilnað (SES) sem styður fjölskyldur og börn við að takast á við breyttar fjölskylduaðstæður og áskoranir í tengslum við skilnað eða sambúðarslit. Yfir þúsund börn og foreldrar sóttu námskeið í fyrra Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytt námskeið og stuðningsúrræði fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Á síðasta ári voru til að mynda haldin tugir námskeiða sem yfir 600 foreldrar og rúmlega 400 börn tóku þátt í. Þar á meðal er uppeldisráðgjöf og foreldrafræðsla sem fer fram á heimilum fjölskyldna. Foreldrar sem hafa fengið slíka þjónustu lýsa henni sem gagnlegri, því ráðgjöfin hjálpar til að mynda að samræma uppeldisaðferðir, skapa rútínu á heimilinu og bæta samskipti innan fjölskyldunnar. Raunverulegur ávinningur með farsældarlögunum Foreldrar sem hafa óskað eftir samþættri þjónustu hafa sagt þjónustuna hafa tekið skýrum breytingum eftir tilkomu farsældarlaganna. Þeir foreldrar sem hafa reynslu af því að leita á marga staði eftir þjónustu nefna mikilvægi stuðningsteymis í kringum barnið og fjölskylduna. Þar fer fram markviss samvinna þar sem unnið er eftir áætlun og þjónusta ólíkra stofnana tengd saman. Áður hvíldi mikil ábyrgð á foreldrunum sjálfum, sem skapaði oft streitu. Þeir þurftu að sækja fjölmarga fundi hjá ólíkum stofnunum og endurtaka sömu upplýsingarnar í hvert sinn. Með samþættri þjónustu er ábyrgðin skýrari, þjónustan samfelldari og mun minni líkur á að mál falli á milli kerfa. Höfundar eru verkefnastjórar farsældar barna hjá Reykjavíkurborg
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar