Stríðsyfirlýsing SI Andri Reyr Haraldsson skrifar 10. mars 2026 16:02 Þorsteinn Víglundsson, nýkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins (SI), hefur heldur betur stimplað sig inn. Hann mætti hress í Sprengisand á sunnudaginn var og jós úr viskubrunni sínum. Röksemdir eða staðreyndir viku algjörlega í þessu prinsaviðtali nýkjörins formanns. Heimsmynd hans virðist vera sú að fyrirtækin hafi alræði og almenningur geti étið svo gott sem það sem úti frýs. Launafólk axlaði ábyrgð í síðustu kjarasamningum með því að fallast á litlar launahækkanir, jafnvel lægri en í löndunum í kringum okkur þar sem vextir og verðbólga eru töluvert lægri! Því miður tóku stærstu fyrirtæki landsins ekki þátt í þeirri vegferð eins og lofað var. Nei þau héldu áfram að auka arðsemiskröfur og maka krókinn. Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um 95 milljarða á síðusta ári og Hagar, Skel og Festi, sem selja okkur meðal annars mat, lyf og eldsneyti, högnuðust samanlagt um a.m.k. 16 milljarða, svo dæmi séu tekin. Því mætti alveg ætla að verðbólga hér á landi sé svokölluð „greedflation“ eða græðgisverðbólga. Hann ræddi um flókið umhverfi fyrirtækja, lítil og meðalstór fyrirtæki, sem hann vill meina að honum þyki vænt um. Þau fyrirtæki treysta hvað mest á sitt besta starfsfólk sem þarf að geta lifað af sínum launum. Lífæð samfélagsins er að við getum þrifist í sátt við okkar kerfi sem byggir á trausti, virðingu og mannsæmandi kjörum. Þessi stríðsyfirlýsing Þorsteins er í besta falli vanhugsuð. Ef til vill meinti hann ekkert af því sem hann sagði. Í versta falli er þetta úthugsuð aðferð til að vega að íslensku launafólki, grafa undan gildandi kjarasamningum. Er hann mögulega að boða harðari stefnu og þá aukna arðsemi iðnaðarins án þess að launafólk fái neinn hlut í arðseminni? Eða er hann að láta okkur halda því fram að síðasti kjarasamningur hafi skilað launafólki of miklu? „Maður lendir inn í svörtum kassa veit ekkert hvert maður er að fara.” Þetta sagði Þorsteinn um eftirlit og skipulagsmál. Margt má gagnrýna þegar kemur að flækjustigi skipulagsmála en í viðtalinu kom ekki fram hvort hann vildi fórna gæðum og menntunarkröfum iðnaðarmanna. Vill hann leggja af lögverndun starfsgreina, minnka eftirlit innan geirans eða hvað? Einfaldari ferla fyrir einfaldari mál, hvar endar það? Síðustu áratugi hefur samstarf verkalýðsfélaga iðnaðarmanna og SI verið til fyrirmyndar. Áhersla hefur verið lögð á gæði, menntun og fagmennsku almennt. Sú stefna gæti átt undir högg að sækja með nýjum formanni Samtaka iðnaðarins. Hans hægri-krata-pólitík snýst augljóslega ekki um að fólkið sem vinnur störfin sé með honum í liði. Ég verð að viðurkenna að mér leist ekki illa á nýjan formann SI fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal. En ég get alveg sagt að sem formaður Félags íslenskra rafvirkja líst mér illa á þennan tón og ég skil hvorki alveg hvaðan þetta kemur eða hvert hann er að fara. Hvert er maðurinn að fara og hefur hann lyft hamri? Höfundur er formaður Félags íslenskra rafvirkja og varaformaður Rafiðnaðarsambandsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar