Handbolti

Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM

Sindri Sverrisson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sátu fyrir svörum á fundinum í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sátu fyrir svörum á fundinum í dag. vísir / vilhelm

Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson og landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fóru yfir ýmis mál. Fram undan eru leikir við Svía í hefndarhug.

Fundinn má sjá í heild sinni hér að neðan. Þar kynnti Snorri leikmannahópinn sem mætir Svíum í komandi vináttulandsleikjum hér á landi og fór yfir næstu verkefni landsliðsins sem keppa mun á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs.

Um var að ræða fyrsta blaðamannafund Snorra eftir EM í janúar. Hann hefur átt í viðræðum við HSÍ um að framlengja samning sinn en núgildandi samningur rennur út í vor. 

Aðspurður hvort hann væri að fara fram úr sér með því að leggja nú fram drög að áætlun fyrir næsta árið, með leikjum við Egypta í maí og janúar, og í undankeppni EM í haust, sagði Snorri að það mætti vel vera. Hann væri hins vegar vanur að gera plön fram í tímann og hefði gert það frá því að hann tók við landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×