Andrea byrjuð að slá met í Ástralíu: „Stærsti sigurinn“ að finna gleðina á ný Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 11:30 Andrea gerði sér lítið fyrir og bætti brautarmetið um rúmar tíu mínútur. instagram / @andreakolbeins Hlaupakonan Andrea Kolbeinsdóttir er flutt til Ástralíu. Eftir erfitt síðasta ár fann hún gleðina á ný í fyrstu keppni ársins, sem hún segir stærsta sigurinn, en Andrea sló líka brautarmet og fékk gylltan farseðil til Suður-Kóreu.
Andrea keppti í Golden Trail World Series hlaupi í morgun og bætti brautarmetið í þessu rúmlega 20 kílómetra hlaupi um rúmlega tíu mínútur. Með sigri í hlaupinu fékk hún gylltan farseðil á úrslitamótið Golden Trail sem fer fram í Suður-Kóreu. Ástralar þurfa nú að venjast því, eins og Íslendingar vöndust síðustu ár, að brautarmet eru alltaf í hættu þegar Andrea er annars vegar. Andrea er greinilega komin á gott skrið eftir erfiðleika síðasta árs. Líkamlega heilsan var þá ekki upp á sitt besta og andlegir erfiðleikar fylgdu. Í vetur hefur Andrea búið í Ástralíu og hún sagði frá því á Instagram hversu ánægð hún væri með hlaupið í morgun. „Ég er bara svo ógeðslega ánægð hvað þetta gekk vel og hvað mér fannst gaman að keppa. Maginn var góður og hugarfarið var gott. Síðustu keppnir, síðasta ár, var ég eitthvað svo stressuð og setti allt of mikla pressu á mig. Það tók mestu gleðina í burtu, þannig að það er klárlega stærsti sigurinn að hafa fundið aftur þann anda. Auðvitað skilaði það líka betra hlaupi og það er ógeðslega gaman að hafa unnið þetta líka. Ég var ekkert búin að kynna mér keppendurna og vissi ekki alveg hversu sterkt þetta yrði. En ógeðslega skemmtileg braut, tíu kílómetra upp og tíu kílómetra niður… Þetta boðar mjög gott fyrir gott ár,“ sagði Andrea í sögunni á Instagram. Næst á dagskrá hjá þessari öflugu hlaupakonu er keppni á Tenerife eftir tvær vikur.
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sjá meira