Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Lovísa Arnardóttir skrifar 8. mars 2026 08:46 Töluverður viðbúnaður er við sendiráðið. Vísir/EPA Sprenging varð við bandaríska sendiráðið í Osló um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt norska miðlinum NRK sakaði engan í sprengingunni. Lögreglan leitar eins eða fleiri gerenda með drónum, hundum og í þyrlu. Lögregla segir ekki frekari hættu á svæðinu.
Samkvæmt frétt NRK barst lögreglunni í Osló tilkynning í nótt um hvell við bandaríska sendiráðið. Síðar var staðfest að sprenging hefði orðið við inngang fyrir almenning. Myndir af vef NRK af vettvangi sýna brotið gler víða og nokkra eyðileggingu sendiráðsins. Norska öryggislögreglan, PST, hefur verið upplýst um atvikið samkvæmt frétt NRK og aukamannskapur kallaður út. Martin Bernsen, samskiptaráðgjafi PST, segir við NRK að engin breyting sé á hættustigi og segir þegar í gildi miðlungs hættustig vegna hryðjuverka í Noregi. „Við erum þegar á miðlungsstigi, sem er aukið hættustig,“ segir Berndsen en vildi ekki tjá sig um það hvort norska lögreglan væri í samskiptum við bandarísk yfirvöld. „Í bili fylgjumst við með því sem gerist í rannsókninni og auðvitað erum við einnig með okkar eigin rannsóknir í gangi en ég get ekki tjáð mig frekar um það,“ er haft eftir honum á vef NRK. Sendiráðið opnaði 2017 í þessari byggingu. Vísir/EPA „Þetta er óásættanlegt atvik sem er tekið mjög alvarlega,“ segir Astri Aas-Hansen, dómsmálaráðherra, í yfirlýsingu og að sprengingin sé tekin mjög alvarlega. Haft er eftir nágranna sendiráðsins í frétt VG að sprengingin hafi verið mjög öflug og að þau hafi vaknað við hana. Rannsókn í forgangi Fram kemur í frétt NRK að lögreglan hafi greint frá því í tilkynningu í nótt að slík atvik væru tekin mjög alvarlega og að töluverður mannafli væri að rannsaka málið. Rannsóknin væri í forgangi. Auk þess óskaði lögreglan eftir ábendingum frá fólki sem hefði upplýsingar eða hefur séð eitthvað í kringum Makrellbekken á milli miðnættis og klukkan 2 aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt frétt NRK hefur bandaríska sendiráðið ekki svarað þeim eða gefið neitt út um sprenginguna.
Noregur Bandaríkin Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira