„Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ Árni Jóhannsson skrifar 6. mars 2026 21:31 Dwayne Lautier-Ogunleye átti stórleik gegn Ármanni. Vísir/Anton Dwayne Lautier-Ogunleye átti stórleik þegar Njarðvíkingar unnu flottan 17 stiga sigur á Ármanni í 19. umferð Bónus deildar karla en leikar enduðu 87-104. Dwayne skoraði 50 stig og Ármenningar réðu ekkert við kappann.
Hann vildi samt ekki taka of hrós fyrir sjálfan sig þegar hann talaði við blaðamann eftir leikinn. Það skal líka tekið fram að á tölfræðivef KKÍ er Dwayne skráður fyrir 48 stigum en skýrslan sem tekin var á ritaraborðinu telur 50 stig. Undirritaður fylgdist með Njarðvíkingum fara yfir skýrsluna til að telja stigin hjá honum og hún taldi 50 stig. „Það eru stigin tvö fyrir sigurinn sem eru mikilvægust í þessu. Við skiljum að við þurfum að vinna þessa leiki, það eru þrír leikir þangað til að úrslitakeppnin byrjar og við erum að berjast fyrir því að komast þangað. Svo þegar við erum komnir þangað þá getum við gert hvað sem er.“ Dwayne var beðinn um að tala aðeins um sinn eigin leik og hvað hafi gengið vel fyrir hann sjálfan. „Mínir menn fundu mig bara með auðveldum og þegar ég sá að nokkur skot fóru ofan í þá leið mér bara eins og þetta gæti orðið minn dagur. Við höfðum tíma til að jafna okkur líkamlega og andlega í landsleikjahléinu og verðum að vinna flesta leiki til að komast í úrslitakeppnina.“ Fannst Dwayne eins og að Ármann ætti engin svör við leik hans. „Það er aldrei þannig. Öll liðin í deildinni eru hættuleg og þeir reyndu ýmsa hluti til að stoppa mig. Þjálfarinn kom til mín fyrir leik og bað mig um að vera árásargjarnan því þeir gætu ekki stoppað mig. Þetta gekk vel í dag og liðsfélagar mínir fundu mig vel.“ Það hlýtur að vera fargi létt af leikmönnum Njarðvíkinga að ná í þennan sigur þar sem þeir voru að vinna lið sem er fyrir neðan Njarðvíkinga og sigurinn lyftir þeim líka í áttunda sætið. „Þetta er flott. Verkinu er ekki lokið. Við eigum þrjá leiki sem við þurfum að vinna.“ Hvað gerði Njarðvík rétt til að komast yfir línuna í dag? „Við spiluðum vel saman og spiluðum af hörku. Við tókum fráköst og spiluðum góða vörn ásamt því að gera færri mistök en í fyrri leikjum. Þegar við náum að láta hlutina ganga upp fyrir okkur þá er erfitt að vinna okkur.“
UMF Njarðvík Bónus-deild karla Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Týndur í fjórtán daga Fótbolti Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Sport Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Fótbolti Matthías Guðmundsson: „Þá skaðar það sálina líka“ Fótbolti Fótbraut andstæðing og verður í banni þar til beinið grær Fótbolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Fleiri fréttir Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Sjá meira