Innviðaskuldin – á almenningur að borga hana tvisvar? Þórir Garðarsson skrifar 6. mars 2026 17:19 Í áratugi hafa bíleigendur á Íslandi greitt gríðarlegar fjárhæðir í eldsneytisgjöld, bifreiðagjöld og aðra skatta sem tengjast samgöngum. Þessar tekjur hafa runnið ár eftir ár í ríkissjóð. Samt er nú sagt að samgöngukerfið sé orðið svo vanfjármagnað að leggja þurfi ný gjöld á almenning til að byggja það upp. Þetta vekur eðlilega spurningu: á almenningur að borga tvisvar fyrir samgönguinnviðina? Í umræðunni um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu er sífellt talað um stórar framkvæmdir, ný gjöld og fjármögnun samgöngusáttmálans með tafagjöldum á umferð. Í nýlegri umfjöllun er jafnvel fullyrt að samfélagslegur ábati verkefnanna geti numið yfir þúsund milljörðum króna til lengri tíma. Viðurkennd skuld En í þeirri umræðu gleymist eitt grundvallaratriði: innviðaskuldin sem þegar hefur verið viðurkennd að sé til staðar gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Á það hefur ítrekað verið bent. Til dæmis sagði Svandís Svavarsdóttir, þáverandi innviðaráðherra, í viðtali í ágúst 2024 þegar samgöngusáttmálinn var til umræðu: „Við erum auðvitað í mjög langri skuld við höfuðborgarsvæðið… samgönguinnviðirnir í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu öllu eru sprungnir fyrir löngu.“ Þessi orð staðfesta einfaldan veruleika: fjárfesting í samgönguinnviðum hefur árum saman ekki haldið í við vöxt höfuðborgarsvæðisins. Borgin hefur stækkað hratt, íbúum fjölgað og umferð aukist, en uppbygging gatnakerfisins hefur setið eftir. Hver á að greiða skuldina? Fulltrúar núverandi meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík hafa sjálfir bent á að samgöngusáttmálinn eigi meðal annars að bregðast við uppsafnaðri innviðaskuld í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Með öðrum orðum: stjórnvöld viðurkenna að skuld sé til staðar. En þá vaknar einföld spurning sem sjaldan er spurð: Hver á að greiða hana? Úr því að innviðaskuld hefur myndast vegna þess að stjórnvöld hafa árum saman ekki fjárfest nægilega í samgöngukerfinu, þrátt fyrir allar tekjurnar, er þá eðlilegt að íbúar höfuðborgarsvæðisins borgi hana aftur? Því samhliða samgöngusáttmálanum er nú gert ráð fyrir nýjum gjöldum á notendur samgöngukerfisins, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Guðlaugur Þór Þórðarson benti á þetta í umræðum á Alþingi í febrúar þegar samgönguáætlun var rædd. Hann sagði að fullyrðingar um að áætlunin væri fullfjármögnuð stæðust ekki og bætti við: „Í ofanálag er gert ráð fyrir mikilli gjaldtöku á íbúa, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu… áformuð veggjöld verða sérstakur skattur á Reykvíkinga, einkum á íbúa úthverfanna.“ Tvöföld innheimta Úr því að ríkisvaldið viðurkennir að innviðaskuld sé til staðar vegna vanfjárfestingar fyrri ára og ætlar nú að innheimta sérstök gjöld til að byggja upp innviðina, þá er almenningur í raun beðinn um að greiða tvisvar fyrir sama hlutinn. Fyrst í gegnum almenna skattheimtu. Og síðan aftur í gegnum veggjöld eða tafagjöld. Lagalega má ef til vill færa rök fyrir slíku kerfi. En siðferðilega er spurningin einföld: Er rétt að rukka almenning aftur fyrir innviði sem stjórnvöld viðurkenna sjálf að hafi ekki verið byggðir upp á sínum tíma? Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvog. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngur Þórir Garðarsson Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar