„Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Jakob Bjarnar skrifar 5. mars 2026 17:11 Kristinn Haukur Guðnason blaðamaður, Björn Þorfinnsson fráfarandi ritstjóri DV og Einar Þór Sigurðsson blaðamaður. Vísir heyrir að Einar Þór sé líklegur eftirmaður Björns en Björn telur réttast að Torg, útgefandi DV, tilkynni um það. vísir/vilhelm Björn Þorfinnsson ritstjóri DV er að láta af störfum. Hann hefur verið ritstjóri DV í fimm ár og segir tímabært að láta staðar numið á þeim vettvangi.
Vísir hefur verið að reyna að ná tali af Birni nú um hríð vegna orðróms um að hann væri að hætta störfum. Blaðamaður rak því upp stór augu þegar hann sá að frá þessu var greint á vefmiðlinum Eiríkur Jónsson punktur is. „Já, þetta er alveg glatað. Ég var á hlaupum í vetrarfríi á Spáni þegar þú hringdir fyrst og ætlaði að finna stund til að hringja til baka. Svo tók kaótískt líf mitt yfir. Enginn var meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks Jónssonar hljómaði á línunni. En sennilega var það bara mátulegt á mig að þar myndi „skúbbið“ birtast,“ segir Björn í samtali við Vísi. Blaðamaður Vísis rifjar upp það ráð sem lengi gekk að ef hringt væri í þig og viðkomandi kynnti sig sem Eirík þá á DV, væri rétt að segja: Bíddu aðeins, leggja símann varlega frá sér og hlaupa í burtu. „Já, þú hefðir betur sagt mér af þessu,“ segir Björn og hlær. Hætti eftir tvö ár og aftur nú Björn lýkur störfum að viku liðinni. Björn segist þó ekki hættur í fjölmiðlum, verkefnin verði bara minni og sértækari. „Það er ágætur tími kominn á þetta, fimm ár. Ég held að það sé gott fyrir mig og miðilinn að hleypa nýju blóði að. Þetta rænir mann hugarró. Og verra með fréttir sem þú birtir ekki,“ segir Björn. Björn sagði á sínum tíma upp störfum eftir tvö ár á DV en þá riðu þær hörmungar yfir að Fréttablaðið varð gjaldþrota. „Þá breyttust aðstæður, við fluttum skrifstofurnar upp í Hlíðarsmára, sem er tveimur mínútum frá heimili mínu. Eitt og annað breyttist til hins betra. Ég ákvað að taka ár í viðbót og svo teygist það upp í þrjú ár.“ Blaðamennska fáránlega skemmtilegt starf Björn segir blaðamennskuna fáránlega skemmtilegt starf og skemmtilega karaktera sem séu á ritstjórn DV. En nú sé kominn tími á að reyna eitthvað nýtt. „Skemmtilega skrítnir og hressir. En á einhverjum tímapunkti verður maður að setja punktinn. Hvað tekur við, það er kannski meiri óskhyggja en að eitthvað sé fast í hendi. DV tekur bara of mikinn tíma, skipulag og mannaforráð…“ Björn segist gjarnan vilja notað tímann í eitthvað sem eigi betur við sig og sé fjölskylduvænna. Konan hans sé að stofna fyrirtæki sem hefur dafnað vel og mikilvægt sé að allir séu til staðar svo fjölskyldan líði ekki fyrir þann mikla tíma sem fer í að vera ritstjóri DV.
Vistaskipti Fjölmiðlar Tímamót Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira