Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. mars 2026 13:58 Ásta Kristín segist hvergi bangin þrátt fyrir að hafa ekki verið tilnefnd en segist sakna betri samskipta af hálfu skipuleggjenda. Tónlistarkona sem fékk tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir mistök er ósátt við viðbrögð skipuleggjenda við mistökunum. Hún fékk tölvupóst sólarhring eftir tilnefningu þar sem henni var tjáð að tilnefningin hefði verið send á hana fyrir slysni en hún segir framkvæmdastjóra ekki svara símtölum. „Hann sagðist í gærkvöldi vera of upptekinn til að tala við mig en að hann ætlaði að reyna að hringja, svo hef ég ekkert heyrt í dag. Ég sendi þeim harðorðan tölvupóst í kjölfarið þar sem ég furðaði mig á því hverskonar framkoma þetta væri eiginlega, ég hef engin viðbrögð fengið,“ segir tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir í samtali við Vísi. Hún fékk tölvupóst í fyrradag þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið tilnefnd til verðlaunanna fyrir plötuna sína Blokkarbarn og boðið að mæta sérstaka athöfn í Austurbæjarbíó. Platan var á mörgum listum yfir bestu plötur ársins í fyrra og hlaut Ásta meðal annars Kraumsverðlaun fyrir plötuna. Sólarhring síðar fékk hún póst þar sem henni var tjáð að netfangið hennar hefði slæðst inn í sendingu fjöldapósts sem hún hefði ekki átt að fá. Sæl Ásta! Fyrir afspyrnuleiðinleg, mannleg mistök slæddist nafn þitt inn í sendingu fjöldapósts frá Íslensku tónlistarverðlaununum í gær. Því miður átti þetta ekki að rata til þín og við getum ekki annað en beðið þig afsökunar á þessu. Gerum okkur grein fyrir þeim óþægindum sem þessum mistökum fylgja. Virðingarfyllst! Verkstjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna „Það er ótrúlega sérstakt hvernig þessi tölvupóstur er skrifaður. Svo er það bara verkstjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna sem kvittar undir, það er engin manneskja, sem er ótrúlega furðulegt,“ segir Ásta sem bætir því við að henni þyki málið fyrst og fremst snúast um það sem hún upplifir sem virðingarleysi í sinn garð og skort á svörum skipuleggjenda. Þá sé auk þess um fjárhagslegt tjón að ræða þar sem Ásta býr á Ísafirði og hafði keypt sér flugmiða dýrum dómum til að geta verið viðstödd athöfn í Austurbæjarbíói í Reykjavík á eftir. „Ég veit hvers virði ég er sem manneskja og listakona, þetta snýst ekki um að ég sé eitthvað brjáluð af því ég er ekki tilnefnd, engan veginn, heldur snýst þetta fyrst og fremst um það að fólk sem á að vera að vinna í þágu listamanna skuli koma svona fram við listamenn og þetta samskiptaleysi.“ Kristján Freyr Halldórsson framkvæmdastjóri segir í samtali við Vísi að málið sé leiðinlegt. Hann eigi eftir að ræða símleiðis við Ástu og að það væri hans næsta skref. Íslensku tónlistarverðlaunin Tónlist Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
„Hann sagðist í gærkvöldi vera of upptekinn til að tala við mig en að hann ætlaði að reyna að hringja, svo hef ég ekkert heyrt í dag. Ég sendi þeim harðorðan tölvupóst í kjölfarið þar sem ég furðaði mig á því hverskonar framkoma þetta væri eiginlega, ég hef engin viðbrögð fengið,“ segir tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir í samtali við Vísi. Hún fékk tölvupóst í fyrradag þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið tilnefnd til verðlaunanna fyrir plötuna sína Blokkarbarn og boðið að mæta sérstaka athöfn í Austurbæjarbíó. Platan var á mörgum listum yfir bestu plötur ársins í fyrra og hlaut Ásta meðal annars Kraumsverðlaun fyrir plötuna. Sólarhring síðar fékk hún póst þar sem henni var tjáð að netfangið hennar hefði slæðst inn í sendingu fjöldapósts sem hún hefði ekki átt að fá. Sæl Ásta! Fyrir afspyrnuleiðinleg, mannleg mistök slæddist nafn þitt inn í sendingu fjöldapósts frá Íslensku tónlistarverðlaununum í gær. Því miður átti þetta ekki að rata til þín og við getum ekki annað en beðið þig afsökunar á þessu. Gerum okkur grein fyrir þeim óþægindum sem þessum mistökum fylgja. Virðingarfyllst! Verkstjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna „Það er ótrúlega sérstakt hvernig þessi tölvupóstur er skrifaður. Svo er það bara verkstjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna sem kvittar undir, það er engin manneskja, sem er ótrúlega furðulegt,“ segir Ásta sem bætir því við að henni þyki málið fyrst og fremst snúast um það sem hún upplifir sem virðingarleysi í sinn garð og skort á svörum skipuleggjenda. Þá sé auk þess um fjárhagslegt tjón að ræða þar sem Ásta býr á Ísafirði og hafði keypt sér flugmiða dýrum dómum til að geta verið viðstödd athöfn í Austurbæjarbíói í Reykjavík á eftir. „Ég veit hvers virði ég er sem manneskja og listakona, þetta snýst ekki um að ég sé eitthvað brjáluð af því ég er ekki tilnefnd, engan veginn, heldur snýst þetta fyrst og fremst um það að fólk sem á að vera að vinna í þágu listamanna skuli koma svona fram við listamenn og þetta samskiptaleysi.“ Kristján Freyr Halldórsson framkvæmdastjóri segir í samtali við Vísi að málið sé leiðinlegt. Hann eigi eftir að ræða símleiðis við Ástu og að það væri hans næsta skref.
Sæl Ásta! Fyrir afspyrnuleiðinleg, mannleg mistök slæddist nafn þitt inn í sendingu fjöldapósts frá Íslensku tónlistarverðlaununum í gær. Því miður átti þetta ekki að rata til þín og við getum ekki annað en beðið þig afsökunar á þessu. Gerum okkur grein fyrir þeim óþægindum sem þessum mistökum fylgja. Virðingarfyllst! Verkstjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna
Íslensku tónlistarverðlaunin Tónlist Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira