Kjósendur eru ekki fífl Elliði Vignisson skrifar 5. mars 2026 11:32 Kjósendur hafa sérstakt óþol fyrir því þegar stjórnmálaflokkar segja eitt en gera annað. Samfylkingin sagðist vera með plan. Hún sagðist ætla að berja niður vexti með sleggju. Það var stóra loforðið. Síðasta ríkisstjórn stóð ekki við loforð sín Á undan hafði gengið ríkisstjórn sem spannaði allt hið pólitíska litróf. Til að halda henni saman voru endalausar og illa þokkaðar málamiðlanir. Enginn flokkur gat staðið við það sem hann lofaði. Þetta þoldu kjósendur ekki. VG hvarf af þingi, Framsóknarflokkurinn berst fyrir lífi sínu og Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei í sögunni verið minni. Fylgi Samfylkingar fór í 35% Kjósendur tóku loforðum Samfylkingarinnar alvarlega. Hún fékk metkosningu 20,8%. Landsmenn höfðu mikla trú á að staðið yrði við loforðin. Í þjóðarpúlsi Gallup mældist Samfylkingin mest með 35% fljótlega eftir að hún hóf störf. Trúin á sleggjuna og planið var mikil. Mögnuð tengsl Vísitala neysluverðs (VNV) er mælikvarði sem sýnir hvernig verð á vörum og þjónustu sem heimili kaupa breytist með tímanum. Hún er notuð til að mæla verðbólgu. Ragnar M. Gunnarsson, sá glöggi talnarýnir og Flateyringur, hefur skoðað tengsl á mældu fylgi Samfylkingarinnar og vísitölu neysluverðs. Niðurstaðan er mögnuð. Fyrir áhugafólk um tölur og stjórnmál er áhugavert að sjá að tengslin eru nánast fullkomlega tölulega andhverf. Í hvert skipti sem vísitala neysluverðs lækkar, þá hækkar fylgið við Samfylkinguna. Í hvert skipti sem vísitalan hækkar þá lækkar fylgið við hana. Verðbólgan ræður 70% af fylgi Samfylkingarinnar Þegar rýnt er nánar þá liggur nærri að fyrir einnar prósentu hækkun í verðbólgu þá lækkar fylgi Samfylkingar um rétt um 9,7%. Auðvitað eru margir fyrirvarar á ályktunum sem þessum svo sem sá einfaldi sannleikur að fylgni merkir ekki alltaf orsakasamhengi. Hjá því verður þó ekki litið að tengslin þarna á milli eru sterk. Miðað við þessi gögn ráðast 69,6% af breytileika fylgis Samfylkingarinnar af verðbólgunni. Allt annað sem gerist á þingpöllunum ræður þá eingöngu rétt um 30%. Loforð verða að standa Kjósendur láta ekki blekkja sig. Þeir eru nefnilega engin fífl. Þeir gera þá einföldu og sanngjörnu kröfu að stjórnmálafólk og flokkar standi við það sem þeir lofa. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Elliði Vignisson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Kjósendur hafa sérstakt óþol fyrir því þegar stjórnmálaflokkar segja eitt en gera annað. Samfylkingin sagðist vera með plan. Hún sagðist ætla að berja niður vexti með sleggju. Það var stóra loforðið. Síðasta ríkisstjórn stóð ekki við loforð sín Á undan hafði gengið ríkisstjórn sem spannaði allt hið pólitíska litróf. Til að halda henni saman voru endalausar og illa þokkaðar málamiðlanir. Enginn flokkur gat staðið við það sem hann lofaði. Þetta þoldu kjósendur ekki. VG hvarf af þingi, Framsóknarflokkurinn berst fyrir lífi sínu og Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei í sögunni verið minni. Fylgi Samfylkingar fór í 35% Kjósendur tóku loforðum Samfylkingarinnar alvarlega. Hún fékk metkosningu 20,8%. Landsmenn höfðu mikla trú á að staðið yrði við loforðin. Í þjóðarpúlsi Gallup mældist Samfylkingin mest með 35% fljótlega eftir að hún hóf störf. Trúin á sleggjuna og planið var mikil. Mögnuð tengsl Vísitala neysluverðs (VNV) er mælikvarði sem sýnir hvernig verð á vörum og þjónustu sem heimili kaupa breytist með tímanum. Hún er notuð til að mæla verðbólgu. Ragnar M. Gunnarsson, sá glöggi talnarýnir og Flateyringur, hefur skoðað tengsl á mældu fylgi Samfylkingarinnar og vísitölu neysluverðs. Niðurstaðan er mögnuð. Fyrir áhugafólk um tölur og stjórnmál er áhugavert að sjá að tengslin eru nánast fullkomlega tölulega andhverf. Í hvert skipti sem vísitala neysluverðs lækkar, þá hækkar fylgið við Samfylkinguna. Í hvert skipti sem vísitalan hækkar þá lækkar fylgið við hana. Verðbólgan ræður 70% af fylgi Samfylkingarinnar Þegar rýnt er nánar þá liggur nærri að fyrir einnar prósentu hækkun í verðbólgu þá lækkar fylgi Samfylkingar um rétt um 9,7%. Auðvitað eru margir fyrirvarar á ályktunum sem þessum svo sem sá einfaldi sannleikur að fylgni merkir ekki alltaf orsakasamhengi. Hjá því verður þó ekki litið að tengslin þarna á milli eru sterk. Miðað við þessi gögn ráðast 69,6% af breytileika fylgis Samfylkingarinnar af verðbólgunni. Allt annað sem gerist á þingpöllunum ræður þá eingöngu rétt um 30%. Loforð verða að standa Kjósendur láta ekki blekkja sig. Þeir eru nefnilega engin fífl. Þeir gera þá einföldu og sanngjörnu kröfu að stjórnmálafólk og flokkar standi við það sem þeir lofa. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar