Takk! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar 5. mars 2026 10:03 Hún er ansi dökk og sorgleg sú mynd sem var dregin upp af þjónustu við einhverfa í fréttaskýringaþættinum Kveik á þriðjudaginn var. Því miður situr einhverft fólk oft á hakanum þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu og þekking á einhverfu er oft ansi bágborin. Ég áttaði mig sjálfur á því hvað ég og fólkið í kringum mig vissi lítið um einhverfu þegar ég var greindur fyrir rúmum tveimur árum (samkvæmt nýjum viðmiðum). Það var þá sem að ég brann yfir, fór í svokallað autistic burnout. Mér var vísað á BUGL og hef síðan þá verið að velkjast um í kerfinu. Ég viðurkenni að ég hef ansi oft upplifað vonlausa stöðu gagnvart kerfinu og einhverfunni, auk þess sem að ýmsar aðferðir sem hafa verið notaðar á mínu ferðalagi hafa verið sérstæðar og jafnvel gagnslausar. En í miðri dökkri umræðunni langar mig að nýta tækifærið til þess að þakka. Mig langar til þess að þakka starfsfólki FG. Það má segja að þau hafi í raun haldið mér á lífi með því að taka utan um mig og þrýsta á að ég fengi inn á BUGL. Mig langar til þess að þakka öllu starfsfólkinu á BUGL sem að gerði sitt allra besta til þess að koma mér aftur upp, fræddu mig um einhverfu og sýndu mér skilning. Mig langar til þess að þakka ráðgjafa mínum hjá Virk fyrir að sýna sveigjanleika og skilning í erfiðri stöðu og úr þeim fáu úrræðum sem hún hafði. Mig langar til þess að þakka Krossgötunni, Heimastyrk og Sen ráðgjöf fyrir að hjálpa mér að skilja mig betur og vekja hjá mér von. Mig langar til þess að þakka námsráðgjafa FÁ fyrir að leiðbeina mér og ráðleggja mér við endurkomu í nám. Mig langar til þess að þakka starfsfólki Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins fyrir að tryggja samfellu þjónustu frá BUGL, að taka vel á móti mér og fara beint í málin. Að lokum langar mig til þess að þakka mömmu og pabba, ömmu og afa, frænku og frænda og systur minni fyrir að styðja við mig á ansi erfiðum tímum og vera vakin og sofin yfir heilsu minni. Ég elska ykkur! Þökk sé öllum þessum aðilum er ég á lífi í dag og kominn langt í átt að því að finna lífsgleði aftur. Staðan hjá mér er langt í frá æðisleg en ég er samt heppnari en mörg önnur. Fyrir það er ég þakklátur en um leið sorgmæddur yfir því að mörg fá ekki að nýta þjónustu sem hentar þeim. Nú er ekki tíminn til þess að gefast upp. Ég lofa að gera mitt allra besta til þess að styðja við það að fleiri fái að njóta þjónustu sem hentar þeim, í þakklætisskyni fyrir allt það sem þau hafa gefið mér. Áfram einhverft fólk! Höfundur er nemi á einhverfurófi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einhverfa Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar