Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Kristján Már Unnarsson skrifar 4. mars 2026 20:55 Arnar Eysteinsson, bóndi í Bessatungu í Dalabyggð, hefur unnið á 20 loðnuvertíðum undanfarin 25 ár. Loðnubrestur var árin sem upp á vantar. Sigurjón Ólason Verðmætasti hluti loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að komast á fulla ferð í loðnubyggðum landsins. Á Akranesi eru það sauðfjárbændur af Vesturlandi og úr Húnaþingi sem bera uppi vinnslu hrognanna.
Í fréttum Sýnar var farið á loðnuvertíð á Akranesi sem hófst þar í fyrradag þegar Venus NS-150 kom inn með fyrsta loðnufarminn. Í dag var verið að landa úr öðru skipi Brims, Svani RE-45. Loðnan veiddist við utanvert Snæfellsnes og í Breiðafirði. Hjalti Einarsson skipstjóri segir að hún sé að nálgast hrygningu. „Þessi ganga sem við vorum að vinna í á sjálfsagt stutt eftir. En svo eru að koma bæði vestanganga og önnur ganga með Suðurlandinu sem við bindum vonir við að við náum að veiða úr.“ Hjalti Einarsson, skipstjóri á Svani RE, við löndun á Akranesi í dag.Sigurjón Ólason -Þannig að það er staðfest að það er að koma vestanganga? „Já, við sáum hana núna í síðasta túr,“ svarar skipstjórinn. Inni í vinnsluhúsi Brims fór öll loðnan í vinnslu hrogna. Það vakti athygli okkar að stór hluti nærri fjörutíu starfsmanna eru sauðfjárbændur. „Síðan er náttúrlega líka fólk frá Akranesi og úr nærsveitum hérna. En þetta er, já, blandað. Bændur í Dölum og Húnaþingi,“ segir Arnar Eysteinsson, bóndi í Bessatungu í Saurbæ í Dölum, og áætlar að um helmingurinn, alls um tuttugu manns, séu bændur. Sigmundur H. Sigmundsson, bóndi í Laxárdal í Dölum, áður á Látrum í Ísafjarðardjúpi, skolar hrognin.Sigurjón Ólason Hrognin eru verðmætasta afurð loðnunnar enda seld sem kavíar. Í einu kari sem sáum á vinnslugólfinu gætu verið upp undir 400 þúsund króna verðmæti. Og salurinn var fullur af körum með loðnuhrognum úr einni löndun úr einu skipi. „Yfirleitt eru þetta bestu túrarnir og mig grunar að það verði þannig núna líka,“ segir Hjalti skipstjóri. -Er þá ekki meiri stemning um borð? Jú, jú. Og það ert styttra á miðin.“ Svanur RE-45 í Akraneshöfn í dag. Skipið landaði um 1.600 tonnum af loðnu.Sigurjón Ólason -En hvers vegna fara bændur á loðnuvertíð? „Það er kannski til þess að það sé hægt að kaupa áburð og svoleiðis á túnin, þá hafa menn gert þetta. -Þannig að þetta eru uppgrip? „Þetta er uppgrip, sko. Það er engin spurning,“ svarar Dalabóndinn hér í frétt Sýnar: Sjálfur hefur Arnar unnið við flestar loðnuvertíðir undanfarinn aldarfjórðung og harmar því loðnubrest. Bændur í Dölum og Húnaþingi bíða ekki síður en margir aðrir eftir fréttum af loðnuleit. „Það er svolítið þannig. Menn bíða bara að vita hvað gerist.“ Starfsmenn við loðnuvinnslu Brims á Akranesi í dag.Sigurjón Ólason -En þetta er það mikil törn að þið gistið hérna. Þið eruð ekkert að fara heim í millitíðinni? „Já, já. Allavega í góðum vertíðum þá erum við kannski hérna í tuttugu daga. En það verður minna núna. Þetta er þannig lítill kvóti. Við gistum hérna í verbúð,“ segir Arnar bóndi. „Stemmning er yfirleitt góð á loðnuvertíð. Sem betur fer fáum við ennþá eina og eina vertíð. Þetta er ekki alveg búið, segir Hjalti skipstjóri.
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Akranes Brim Landbúnaður Sauðfé Tengdar fréttir Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur. 13. febrúar 2026 21:24 Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31 Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42 Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira
Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur. 13. febrúar 2026 21:24
Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42
Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56