Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2026 16:32 Solla hafði enga reynslu af kjöt- og fiskréttum þegar hún byrjaði en er komin með góð tök á því í dag. Hin margverðlaunaði heilsukokkur Sólveig Eiríksdóttir starfar nú sem kokkur á meðferðarheimilinu Krýsuvík þar sem hún eldar bæði sína frægu grænmetis- og veganrétti og svo einnig dýrindis fisk- og kjötrétti.
En Solla hefur sérhæft sig í grænmetisréttum og þar eru til dæmis baunaréttir eins og eru vinsælir í Blue Zone-löndunum svokölluðu þar sem fólk verður hundrað ára gamalt. Solla er einnig með námskeið sem hún kallar Meira grænt ásamt dóttur sinni Hildi sem er með BS í næringarfræði. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti Sollu í eldhúsið í Krýsuvík í gærkvöldi. „Ég ætla að búa til fyrir ykkur chili þar sem ég nota baunir og maður getur notað bara þær baunir sem maður vill. Svo ríf ég niður rauðrófur af því að baunir og rauðrófur gefa manni svo mikið gott, bæði gott prótein og svo járn. Svo er þetta blóðaukandi og það er svo margt jákvætt við þetta,“ segir Solla og heldur áfram. „Þetta er vinsælasti rétturinn og mér finnst það svo gaman. Margir hérna eru ekkert vanir að borða mikið af baunum og grænmeti. Og leist kannski ekki á blikuna en það er með baunir eins og allt annað. Þetta þarf bara að bragðast vel. Þessi réttur er mjög bragðgóður. Svo er ég með alveg fullt af fersku meðlæti og það sem kom mér svo á óvart var þegar þau fóru að opna sig við mig og deila því með mér að þetta væri uppáhaldið þeirra,“ segir Solla og bætir við að rétturinn sé mjög auðveldur. Fínt í dósum „Ég byrja bara á að skutla smá lauk og kryddi í pott. Síðan tómatpúrru og mér finnst svo gott að brenna aðeins tómatpúrruna á meðan ég undirbý restina. Svo set ég út í baunir, ríf niður rauðrófur og það er hægt að kaupa þær forsoðnar,“ segir Solla og bætir við að auðvelt sé að nota góðar baunir í dós í verkefnið. „Svo set ég út í svolítið af tómatmauki og kryddi og svo leyfi ég þessu að sjóða.“ En hvaða krydd notar heilsukokkurinn? „Ég nota oregano, kúmmen og svo nota ég reykta papriku og svo salt. Og ef fólk vill hafa það sterkara þá er hægt að hafa með þessu chillisósu.“ Solla er þekktust fyrir grænmetisrétti og veganrétti en þarna reiðir hún einnig fram fiski- og kjötrétti. „Það kom mér svolítið á óvart af því hér þarf ég að elda kjöt og fisk. Og ég er ekki með neina reynslu í því, enga. Við erum hér á veitingahúsavöktum og vikuna sem ég er á fleiri vöktum þá þarf ég náttúrulega að elda einu sinni kjöt og einu sinni fisk. Og þá kom reynsla mín í að marinera tófú sér vel. Þú tekur ekkert bara kjöt ósaltað eða ókryddað og eldar það. Þetta er alltaf það sama og ég held að aðalmálið sé alltaf bragðið,“ segir Solla en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Matur Vegan Vala Matt Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira