Leituðu skjóls í Hreysinu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. mars 2026 08:34 Á myndinni sést neyðarskýlið við Hreysiskvísl. Þorsteinn Jónsson Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur skíðagöngumönnum til bjargar sem höfðu leitað sér skjóls í gömlu neyðarskýli við Hreysiskvísl, töluvert norðan Þórisvatns á Sprengisandsleið.
Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að Neyðarlínunni hafi borist aðstoðarbeiðni í gegnum Garmin miðstöðina í Bandaríkjunum eftir að fólki hafði virkjað neyðarboð í staðsetningartæki sínu. Gul veðurviðvörun var á þessum slóðum og fyrsta viðbragð björgunarsveitanna nokkuð stórt. Kallaðar voru út sveitir frá Þjórsá í vestri að Skaftártungum og einnig voru kallaðar út áhafnir snjóbíla á Suðurlandi. „Fyrstu bílar voru fljótlega komnir á þær slóðir að ljóst var að færðin yrði ekki til trafala og ljóst á þeim tímapunkti að fólkið hafði leitað skjóls í gömlu neyðarskýli sem Slysavarnafélag Íslands, eitt þeirra félaga sem sameinuðust í Slysavarnafélagið Landsbjörg, lét reisa fyrir um 60 árum,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Þrekuð og með kalsár Viðbragð snjóbílaáhafna var þá afturkallað og stefndu fjallajeppar Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu og Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli að neyðarskýlinu. „Símasamband var við fólkið, erlent par, og höfðu þau leitað skjóls í neyðarskýlinu eftir að hafa verið fimm daga á göngu frá Akureyri. Annað þeirra var þá orðið nokkuð þrekað og möguleg kalsár í andliti,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Eftir um tveggja tíma ferð komu fyrstu björgunarmenn að Hreysiskvísl rétt fyrir klukkan 12 á hádegi á gær. Fólkið var tekið inn í hlýjan bílinn og búnaður þeirra sömuleiðis. Parið var svo flutt á Heilsugæsluna á Hellu til aðhlynningar þangað sem komið um tveimur tímum síðar. Í tilkynningu Landsbjargar er saga neyðarskýlisins sem þarna bjargaði sennilega skíðagöngufólkinu rakin: Neyðarskýlið við Hreysiskvísl. „Neyðarskýlið við Hreysiskvísl var eins og áður segir reist fyrir tilstuðlan Slysavarnafélags Íslands, eins forvera Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fyrir um 60 árum. Við sameiningu Slysavarnafélags Íslands og Landsbjargar, landsambands björgunarsveita árið 1999, var fjölmörgum neyðarskýlum víðs vegar um landið úthlutað til nærliggjandi björgunarsveita til eignar og viðhalds. Sum þeirra hafa verið rifin og til voru þeir innan björgunarsveitarinnar Dagrenningar sem vildu láta rífa skýlið við Hreysiskvísl, enda um langa leið að fara um grófa fjallvegi til að sinna viðhaldi, eða um 200 kílómetra ferð. Fyrir 2 árum síðan setti sig í samband við Slysavarnafélagið Landsbjörgu, Ágúst Hálfdánarson, sem á sínum tíma hafði komið að smíði skýlisins með föður sínum. Hann var í kjölfarið tengdur við Dagrenningu, enda hafði hann áhuga á að koma að viðhaldi skýlisins, sérstaklega með það í huga að skíðaferðum yfir hálendi Íslands væri að fjölga og neyðarskýlið vel staðsett með þarfir skíðagöngufólks í huga. Í kjölfarið var stofnaður hópurinn Vinir Hreysisins og viðhald hafið á skýlinu. Einnig var það kannað innan sveitarfélagsins Ásahrepps hvort ekki fengist leyfi fyrir áframhaldandi veru neyðarskýlisins á þessum stað. Skýlið stendur nú í þjóðlendu og nú í febrúar kom samþykki Forsætisráðuneytisins fyrir því að stofnuð yrði lóð fyrir skýlið. Ef efasemdir hafa verið um tilvist þessa skýlis og verkefnið sem Ágúst hratt af stað, þá sannaði þetta litla neyðarskýli tilvist sína í gær þegar það hýsti þessa tvo skíðagöngumenn og veitti þeim skjól á meðan þau biðu björgunar.“
Björgunarsveitir Rangárþing ytra Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira