Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. mars 2026 22:30 Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar. vísir/lýður valberg Mikil uppbygging er í vændum á Akureyri. Kennileiti munu víkja og byggðin verður þétt án þess að bæjarbúar fari á mis við bílastæði. Þetta segir forseti bæjarstjórnar Akureyrar sem kveðst vongóð um að lokka höfuðborgarbúa norður.
Bæjarstjóri Akureyrar kynnti húsnæðisáætlun bæjarins fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á fundi í síðustu viku. Í áætluninni er úthlutun lóða fyrir næstu tíu ár en þar er gert ráð fyrir um 260 íbúðum á ári. Samkvæmt því sem kemur fram þar mun ásýnd bæjarins breytast töluvert á komandi árum. Í spilaranum hér að neðan má sjá hvar íbúðir eru nú þegar í byggingu og hvernig Holtahverfi mun til að mynda líta út að ofan. Þá stendur til að ráðast í framkvæmdir á ýmsum öðrum stöðum eins og tjaldsvæðisreitnum. Þá munu önnur kennileiti líkt og Akureyrarvöllur og BSO-húsið einnig víkja. Á tjaldsvæði rétt hjá sundlaug bæjarins munu rísa 180 íbúðir og er reiknað með að framkvæmdir hefjist á næstu tveimur árum. „Hér koma fjölbýlishús að mestu leyti og svo verslunarhús hérna. Við gerðum ráð fyrir heilsugæslu á sínum tíma en það breyttist. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir spennandi tíma fram undan. „Það stefnir í mjög mikla uppbyggingu og hefur verið síðustu ár. Við fögnum því ða sjálfsögðu. Við erum þetta vaxtarsvæði fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Okkur er að fjölga um kannski 200 manns á ári. Við teljum okkur þurfa að byggja og byggja jafnvel umfram það og lokka jafnvel höfuðborgarfólkið til okkar.“ Byggðin mun þéttast þó nokkuð við þetta en Halla segir mikið lagt upp úr því að tryggja bílastæði fyrir íbúa. „Það er gert ráð fyrir á öllum, ef ekki flestum, stöðunum bílakjöllurum til að koma til móts við það sem við missum. Við erum búin að vera passa okkur að lenda ekki í því sama og hefur gerst á höfuðborgarsvæðinu, að við lendum með of fá bílastæði.“ Töluverð uppbygging hefur átt sér stað í Hlíðarfjalli á síðustu árum og er stefnt að því að ná enn lengra. „Við höfum verið að kalla eftir samtali við ríkið um frekari uppbyggingu og að þetta verði að endingu þjóðarleikvangur okkar í vetraríþróttum.“
Akureyri Bílastæði Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira