Molde kaupir ungan leikmann frá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 19:08 Trent Kone-Doherty í leik með varaliði Liverpool en hann spilaði tvo leiki fyrir aðalliðið. Getty/Nick Taylor Hinn nítján ára gamli Trent Kone-Doherty hefur skrifað undir fjögurra ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið Molde. Norður-Írinn kemur frá Liverpool þar sem hann hefur spilað tvo leiki með aðalliðinu.
Molde tilkynnir um samninginn við kantmanninn á vefsíðu sinni. Kone-Doherty lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í febrúar á síðasta ári. Þá kom hann inn á í bikarleik gegn Plymouth. Í október fékk hann mínútur af bekknum gegn Crystal Palace. Hann hafði verið hjá Liverpool síðan 2022. „Þetta er fullkominn klúbbur fyrir mig. Mér líkar verkefnið sem mér var kynnt hér og ég er mjög spenntur fyrir því að byrja,“ sagði Kone-Doherty á vefsíðu Molde. Íþróttastjórinn Ole Jakob Strandhagen er mjög ánægður með samninginn. „Hann hefur fengið góða menntun hjá Liverpool og við erum mjög ánægð með að hann hafi valið Molde sem næsta skref í þróun sinni. Ferlið hefur verið gott og við þökkum Liverpool fyrir gott samningaandrúmsloft, þrátt fyrir að þeir hafi einnig haft mikinn áhuga á að halda Trent. Við hlökkum til að þróa sóknarhæfileika hans áfram á Aker Stadion og í Eliteserien,“ sagði Strandhagen. The Times greinir frá því að Molde greiði um 9,6 milljónir norskra króna fyrir þennan 19 ára leikmann. Þá skrifar blaðið að Liverpool hafi tryggt sér bæði endurkaups- og endursöluákvæði. View this post on Instagram A post shared by Molde Fotballklubb (@moldefotballklubb)
Enski boltinn Norski boltinn Liverpool FC Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn