UEFA hafnaði áfrýjun Benfica og Prestianni fær ekki að spila gegn Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 17:00 Gianluca Prestianni talaði til Vinicius Junior sem á endanum fór beint til dómarans. Getty/Angel Martinez Áfrýjunarnefnd UEFA hefur hafnað áfrýjun Benfica vegna leikbanns Gianluca Prestianni og hann fær því ekki að spila í seinni leiknum gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.
UEFA hefur hafið agamál gegn Argentínumanninum eftir að hann var sakaður um kynþáttaníð í garð Vinicius Junior í leiknum í Lissabon í síðustu viku. Málið hefur ekki enn verið tekið fyrir en á mánudaginn bárust þau skilaboð að UEFA hefði ákveðið að setja Prestianni í eins leiks bráðabrigðabann á meðan beðið er eftir úrskurði. Það þýðir að hann fær ekki að taka þátt í seinni leiknum á Estádio Bernabeu þar sem Benfica mun reyna að snúa við 0-1 tapi úr heimaleiknum. Prestianni hefur neitað ásökunum um að hafa notað kynþáttaníð og stjórn félagsins hefur stutt hann. Leikmaðurinn fór með hópnum til Madrídar ef ske kynni að áfrýjunin yrði tekin til greina en nú er ljóst að hann mun ekki koma inn á völlinn. Stjarna Real Madrid, Kylian Mbappé, sagði eftir atvikin í Lissabon að að hans mati ætti Prestiano ekki skilið að spila á Estadio Bernabeu. Ef Prestianni verður fundinn sekur um kynþáttafordóma má búast við mun þyngri refsingu en eins leiks banni. Leikur Real Madrid og Benfica verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og hefst útsendingin frá leiknum klukkan 19.50 en upphitun fyrir alla leiki kvöldsins í Meistaradeildinni hefst á sömu rás klukkan 19.30. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom)
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira