Aðför að verðmætasköpun Guðveig Lind Eyglóardóttir skrifar 25. febrúar 2026 13:46 Ég var ánægð að heyra í upphafi kjörtímabilsins að sitjandi ríkisstjórn ætlaði að kenna sig við verðmætasköpun. Verðmætasköpun sem myndi felast í því að efla byggðir landsins, styðja við vöxt fyrirtækja, auka gjaldeyristekjur, efla innviði, skapa störf og auka hagsæld. Í dag hef ég aftur á móti vaxandi áhyggjur af skilningsleysi þessara flokka á því hvað drífur atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni áfram. Það eru stórkostleg vonbrigði að ekkert hafi þokast áfram á þessari verðmætasköpunarvegferð sem ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins kynnti. Þvert á móti virðist stefnan hjá þeim vera sú að veikja markvisst bæði fyrirtæki og byggðir landsins. Sú aðför hefur hreinlega komið úr öllum skúmaskotum frá sitjandi ríkisstjórn. Skattlagning úr öllum áttum. Ríkisstjórnin ætlar að treysta á skattahækkanir við stjórn ríkisfjármála en sér ekki hversu alvarleg langtímaáhrif þessi stefna mun valda. Skattahækkanir eins og afnám samsköttunar hjóna og sambúðarfólks, hærri vörugjöld á bíla og kílómetragjöld sem eru hreinn landsbyggðarskattur. Það er öllum ljóst að þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa haldið uppi verðbólgu og háu vaxtarstigi í landinu sem bitnar á fjölskyldum og fyrirtækjum. Þá hafa álögur á fyrirtæki skapað erfiðara rekstarumhverfi. Hærri veiðigjöld eru þegar farin að bitna á afleiddri starfsemi í sjávarbyggðum og teygja sig um allt land. Atvinnuleysi hefur aukist og ástandið hefur farið hratt versnandi. Þá er það grafalvarleg staða að sú orðræða sem ríkisstjórnin hefur um okkar helstu útflutningsgreinar eins og sjávarútveg og ferðaþjónustu er farin að skapa ranghugmyndir í hugum fólks um þessar mikilvægu atvinnugreinar. Það er miður að ríkisstjórnin sé stöðugt að skrímslavæða fólk og fyrirtæki sem halda uppi atvinnulífi um allt land og skapa mikilvægar tekjur fyrir þjóðarbúið. Nýjasta atlagan. Nýjasta atlagan að landsbyggðinni felst svo í frumvarpi til laga um jöfnun atkvæðavægis. Jöfnun atkvæðavægis hefur þann tilgang að fjölga þingmönnum Höfuðborgarsvæðisins og suðvesturhornsins og fækka þingmönnum annarra kjördæma. Frá upphafi hefur á Alþingi Íslendinga verið fylgt því sjónarmiði að fulltrúalýðræði byggi ekki aðeins á fjölda atkvæða að baki hverjum fulltrúa heldur einnig að íbúar um land allt eigi rödd á löggjafarsamkomunni. Á því sjónarmiði byggja einnig löggjafarsamkomur fjölda annarra lýðræðisríkja. Landsbyggðin, þar sem raunhagkerfið býr. Verðmætasköpun þjóðarbúsins á að mestu leyti uppruna sinn utan þéttbýlasta svæðis landsins svo sem í ferðaþjónustu, matvæla- og orkuframleiðslu. Sú verðmætasköpun er forsenda lífskjara á Íslandi og skatttekna ríkissjóðs. Nærtækasta dæmið er 40 milljarða innspýting í ríkissjóð frá Kerecis sem snýr nú halla á ríkissjóði í afgang. Fram undan er mikið verk að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun í sátt við nærsamfélög um land allt. Í því samhengi hefur aldrei verið mikilvægara en nú að fækka ekki röddum hinna dreifðu byggða á Alþingi Íslendinga. Það er ljóst að sú keðja aðgerða sem sitjandi ríkisstjórn vinnur nú að mun til lengri tíma litið stórskaða hagkerfið. Ég biðla til allra þingmanna sem sitja á löggjafarþinginu að horfa á heildarmyndina til lengri tíma og taka sér stöðu með byggðum landsins, þar sem raunhagkerfið býr. Höfundur er forseti sveitarstjórnar Borgarbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Byggðamál Guðveig Lind Eyglóardóttir Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar