Skipulag endurreisnar í Grindavík og annars staðar Sólveig Þorvaldsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 06:03 Endurreisn í kjölfar samfélagsröskunar er lang tímafrekasta, lang flóknasta, og lang minnst undirbúið verkefni ríkisins vegna náttúruhamfara. Endurreisn samfélagsins á Seyðisfirði vegna aurskriðanna 2020 hefur verið lýst eins og að bunka af blöðum hafi verið hent út í loftið; blöðin sveiflast rólega fram og til baka og lent svo bara einhvers staðar. Margir Grindvíkingar hafa einnig lýst sinni upplifun á þá vegu að skortur sé á utanumhaldi um heildar verkefnið. Þetta er eðlileg upplifun þar sem ekkert heildarskipulag um endurreisnarstarf vegna samfélagsraskana er til á Íslandi. Skortur á heildarskipulagi þýðir ekki að ekkert sé gert. Eftir að atburðir hófust í Grindavík kom alþingi t.d. á svokallaðri Grindavíkurnefnd, ásamt starfsmönnum í þjónustuteymi, stofnaði fasteignafélagið Þórkötlu, lét byggja varnargarða, og Bríet, leigufélag í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hefur aðstoðað fólk við að fá tímabundið húsnæði. Þá hafa aðrir komið að ýmsum verkefnum, t.d., fékk Rauði kross Íslands fjármagn fyrir verkefni fyrir börn. Vandinn liggur ekki í því að ekki sé farið í gang af krafti með alls konar verkefni. Vandinn liggur í skorti á heildarkerfi með vönduðum verkferlum og fyrirfram þjálfuðu fólki. Það kann almennt ekki góðri lukku að stýra að búa til skipulag, hanna verkferla og þjálfa fólk eftir að viðbrögðin eru farin af stað. Það þurfa að vera til ýmis konar kerfi vegna náttúruhamfara í byggð. Til skýringar má skoða kerfi sem fara í gang við rútuslys. Í fyrsta lagi fer neyðarþjónustan á vettvang. Þar er unnið eftir vettvangsskipulagi sem kallast SÁBF (Stjórnun-Áætlun-Bjargir-Framvæmd) sem tengir alla á vettvangi inn í eitt heildarskipulag. Sjúklingar eru fluttir á sjúkrahús þar sem annað kerfi tekur við, skipulag bráðamóttöku. Svo gætu sjúklingar farið í endurhæfingu á Grensás, sem vinnur eftir enn öðru skipulagi. Vegna náttúruhamfara þarf að virkja skipulag neyðarþjónstunnar, svo þarf skipulag sem stuðlar að því að aðstoða heimilislausa við að koma sér fyrir tímabundið, og þriðja skipulagið heldur utan um endurreisnarstarfið – öll þessi kerfi þurfa að vera til staðar áður en á reynir. Á Íslandi þarf átak annars vegar við að bæta það skipulag sem fyrir er varðandi tímabundna aðstoð og hins vegar að búa til heildarskipulag endurreisnar. Skv. rannsóknum eru afleiðingar þess að hafa ekki heildarsamhæfingarkerfi skortur á upplýsingum og yfirsýn, illa ígrundaðar ákvarðanir, óþarfa tafir, ósætti viðbragðsaðila og óánægja meðal íbúa. Í kvikkerfisfræðum (e. System Dynamics) er sagt að skipulag stýrir útkomu (e. structure dictates behaviour). Í umræðunni um betrumbætur er mikilvægt að fólk sem vinnur að verkefnum Grindavíkur taki ekki gagnrýni á heildarutanumhald sem gagnrýni á sig. Ef það er kerfið sem ekki er nógu gott beinast spjótin að þeim sem hafa vald til að bæta kerfið. Rannsóknir benda á fjórar stoðir endurreisnar: meðhöndlun fjármagns, upplýsingamiðlun vegna ákvarðana, samhæfing aðila, og að tímapressa sé vegin og metin. Dýnamísk tímapressa gerir endurreisn einstaklega flókna því aðstæður eru alltaf að breytast. Formaður Grindavíkurnefndar hefur líkt endurreisnarverkefni við pússluspil. Það er að mörgu leyti góð samlíking, en nær þó ekki yfir það flókna orsakasamhengi sem tekur sífellt breytingum (sbr. kvikkerfi), því myndin á pússluspilinu tekur breytingum. Dýnamísk tímapressa kallar á mjög virkt eftirlit með fjármagni, virkri upplýsingamiðlun, og öflugri samhæfingu - alveg frá upphafi atburðar og þar til aðgerðum endurreisnar er lokið. Að vega og meta tímapressu sýnir að stundum er best að gefa í, en stundum er betra að hægja á og t.d. gefa íbúum ráðrúm til að taka ákvarðanir eða gefa náttúrunni tíma til að sýna á spilin. Samstarf ríkis, sveitarfélaga og íbúa er rauði þráðurinn. Sveitarfélög þurfa að vera betur undirbúin og fá betri leiðsögn þegar á reynir. Í sumum tilfellum gæti verið best að ráða fólk í nefnd sem tekur við af sveitarstjórn (sbr. Grindavíkurnefnd), en stundum getur verið betra að ráða fólk tímabundið til starfa hjá sveitarstjórninni til að aðstoða hana, starfsmenn sem hafa þekkingu á endurreisnarstarfi. Þá þarf þátttaka íbúa að vera sérstaklega skipulögð inn í heildarverkefnið þannig að málum sem þau leggja til eða spyrja um sé formlega fylgt eftir og svarað. Auðveldara og fljótlegra er að taka ákvörðun um bestu leiðina hverju sinni ef ýmsir valkostir hafa verið ræddir og æfðir fyrirfram. Þá er spurningin hvernig skipulag endurreisnar á Íslandi á að vera, undir hvaða ráðuneyti, o.s.frv. Þeirri spurningu verður ekki svarað hér. Undirrituð leiddi vinnuhóp rétt fyrir aldamót sem var 1,5 ár að hanna SÁBF kerfið. Það verður líklega ekki minni vinna að hanna kerfi fyrir endurreisn. Hins vegar verður skipulagsbreyting vegna Grindavíkur þann 1. júní n.k. þegar Grindavíkurnefndin verður lögð af og því er umræða um skipulag endurreisnar mikilvæg einmitt núna. Höfundur er byggingar- og jarðskjálftaverkfræðingur með doktorspróf í kvikkerfum vegna samfélagsraskana. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar