Lífið

Stjörnu­lífið: Sjóð­heitar í gusugu­fu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Skvísur landsins voru í stuði yfir konudagshelgina.
Skvísur landsins voru í stuði yfir konudagshelgina. Instagram

Febrúar flýgur áfram með öllum sínum skemmtilegu dögum og árshátíðir, glamúr, konudagurinn og kósíheit taka yfir samfélagsmiðlanna. 

Stjörnur landsins halda auðvitað áfram að deila skemmtilegum augnablikum úr lífi sínu eins og sjá má hér. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Gúmmí í gír

Áhrifavaldurinn og útvarpskonan Gugga í gúmmíbát birti klassíska sjálfsmynd á Instagram. 

Litla Fanney yrði stolt

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra naut sín í botn í sánagusu í Sky Lagoon og segir að unga Fanney hefði verið stolt af sér í dag. 

Saunagususnilld

Unnur Eggertsdóttir skellti sér líka í sánagusu í Sky Lagoon og var mjög hrifin.

Skvís í ölpunum

Ofurpæjan Lára Clausen nýtur sín með litlu fjölskyldunni sinni í Ölpunum. Sambýlismaður hennar er Jens Hilmar sonur Róberts Wessman og þau eiga litla dóttur. 

Tókíó pæja

Bíladrottningin Magnea Björg Jónsdóttir birti mjög skemmtilega myndasyrpu frá ferð sinni til Tókíó.

Útvarpsstrákar

Fyrrum Idolkeppandinn og útvarpsmaðurinn Guðjón Smári birti myndasyrpu til að muna eftir.

Speglasjálfur betri en aðrar

Áhrifavaldurinn og útvarpskonan Jóhanna Helga birti gelló speglasjálfu með gleraugu. 

Ekki kalt í feldum

Og besta vinkona hennar Sunneva Einars birti myndir af þeim skvísum úti að borða í loðfeldum.

Tískudrottning á skíðum

Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir naut sín í ölpunum með hennar heittelskaða Palla Orra sem átti jafnframt afmæli í gær.

Stresslaus Jóna

Jóna Margrét söngkona, Idol pæja og útvarpsskvís finnur aldrei fyrir stressi.

Skvísu strákamamma

Ofurskvísan, markaðsstjórinn og pílateskennarinn Anna Bergmann er strákamamma.

Í svörtum fötum

Áhrifavaldurinn Nadía Sif birti skvísumyndirt klædd svörtum fötum.

Glæsileg fyrir árshátíð

Ofurskvísan Helena OC skellti sér á árshátíð og rokkaði svartan og seiðandi kjól.

Fegurðardís með gráðu

Fegurðarsamkeppnis-skvísan Þorbjörg Kristinsdóttir útskrifaðist með B.ed grunnskólakennslu gráðu.

Flipp í Egyptalandi

Ævintýrakonan Aníta Ösp Ingólfsdóttir sló á létta strengi í Egyptalandi. 

Þrítug í Mexíkó

New York skvísan Hildur Anissa vaknaði þrítug í Mexíkó.

Pastelpæja

Athafnakonan Sofia Elsie Nielsen skellti sér í útskriftarveislu um helgina klædd pastelpæjufitti.

Stórglæsileg fegurðardrottning

Sóldís Ívarsdóttir fyrrum Ungfrú Ísland var glæsileg með Ungfrú Ísland teyminu um helgina.

Dubai drottning

Það væsir ekki um áhrifavaldastjörnuna Brynhildi Gunnlaugs í Dubai.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.