Körfubolti

„Héldum leikplaninu þangað til í lokin“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Það voru blendnar tilfinningar í huga Steinars Kaldals, þjálfara Ármanns, að leik loknum.
Það voru blendnar tilfinningar í huga Steinars Kaldals, þjálfara Ármanns, að leik loknum. Vísir/Hulda Margrét

Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var sáttur við spilamennskuna að flestu leyti þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni á sárgrætilegan hátt í kvöld. Það hafi hins vegar vantað upp á klókindi þegar mest á reyndi undir lokin. 

„Við spiluðum vel lungann úr leiknum og héldum okkar innan leikkplansins. Við náðum að stýra tempóinu og vorum klókir allt þar til í lokin þegar við fórum aðeins út úr því sem við ætluðum að gera,“ sagði Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, eftir leik.

„Þetta er ofboðslega svekkjandi og það er súrt bragð í munninum núna. Við vorum í góðri stöðu til þess að sigla sigrinum heim en vorum sjálfum okkur verstir á endasprettinum,“ sagði Steinar þar að auki.

„Mig langar að hrósa liðinu mínu fyrir að spila frábæra vörn allan leikinn. Baráttan var til fyrirmyndar og ég er stoltur af liðinu þrátt fyrir þetta tap. Við tökum það jákvæða út úr þessum leik og förum að undirbúa okkur fyrir lokasprettinn í landsleikjahléinu,“ sagði hann.

„Við vonumst til þess að Brandon verði klár í slaginn í síðustu fjóra leikina en við verðum bara að sjá til hvernig honum gengur að jafna sig í höndinni. Við erum spenntir fyrir lokaleikjum tímabilsins,“ sagði Steinar um komandi verkefni hjá Ármanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×