„Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 22:55 Mikel Arteta veltir hlutunum fyrir sér á hliðarlínunni í kvöld. Getty/Simon Stacpoole Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sá sína menn missa frá sér tvö stig í öðrum leiknum í röð og gefa Manchester City tækifæri á að minnka forskot þeirra enn frekar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Arsenal komst í 2-0 á móti botnliði Úlfanna en fékk á sig tvö mörk þarf af jöfnunarmarkinu í uppbótartíma. 2-2 jafntefli er gríðarlegt áfall fyrir toppliðið. „Það er mjög erfitt að sætta sig við þetta. Í seinni hálfleik spiluðum við ekki eins og við áttum að gera og eins og krafist er til að vinna leik í ensku úrvalsdeildinni. Það er betra að dæma það ekki, við erum öll of niðurbrotin yfir þessu. Maður verður að taka þessu höggi því við eigum það skilið,“ sagði Mikel Arteta við Sky Sports. „Það er mjög auðvelt í geðshræringu að segja hluti sem geta skaðað liðið. Allir vilja gera sitt besta. Maður verður að ganga í gegnum erfiða tíma. Í dag, á síðustu stundu, fengum við að gjalda fyrir það. Við verðum að gera grundvallaratriðin mun betur en við höfum gert,“ sagði Arteta. „Í dag verðum við að sætta okkur við þetta. Við verðum að vera gagnrýnin á okkur sjálf því þetta var ekki nógu gott. Í deildinni er raunveruleikinn sá að við höfum ekki verið stöðugir síðustu mánuði. Maður verður að standa upp. Þegar maður lendir í erfiðleikum verðum við að sýna hversu mikið við viljum þetta og hversu góð við erum. Við verðum að standa upp,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Arsenal FC Tengdar fréttir „Okkur var refsað fyrir það“ Bukayo Saka var niðurlútur og vonbrigðin uppmáluð þegar hann mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli Arsenal á móti botnliði Úlfanna í kvöld. 18. febrúar 2026 22:46 Mest lesið Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Enski boltinn Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Enski boltinn „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Enski boltinn Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Martraðarbyrjun fyrir Frey en Júlíus Mar í draumalandi Fótbolti Fleiri fréttir Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Sjáðu sniðugustu hornspyrnur tímabilsins Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal „Allir hjá Manchester United elska hann“ Einkaviðtal við Cody Gakpo: „Það eru miklar væntingar frá öllum“ Kvaddi Chelsea með tárin í augunum Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Sjá meira
„Okkur var refsað fyrir það“ Bukayo Saka var niðurlútur og vonbrigðin uppmáluð þegar hann mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli Arsenal á móti botnliði Úlfanna í kvöld. 18. febrúar 2026 22:46