Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. febrúar 2026 07:13 Araghchi sagði langan veg framundan. Getty/Majid Saeedi Viðræðum fulltrúa Íran og Bandaríkjanna lauk í gær en að sögn Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, tókst mönnum að ná saman um ákveðin grundvallaratriði varðandi framhaldið.
Ráðherrann sagði aðila hafa samþykkt að skiptast á drögum að mögulegu samkomulagi en gaf engar frekari upplýsingar um stöðu mála. Að sögn heimildarmanns New York Times innan úr bandaríska stjórnkerfinu gengu viðræðurnar ágætlega. Íranir myndu leggja fram ítarlegri tillögur á næstu tveimur vikum um það hvernig brúa mætti bilið milli aðila. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að gera árás á Íran ef ekki næst samkomulag um kjarnorkuáætlun landsins. Íranir hafa sagt að viðræðurnar muni aðeins ná til kjarnorkumála en Bandaríkjamenn eru sagðir vilja semja um takmarkanir á drægni eldflauga Íran og stuðningi landsins við vopnaðar fylkingar í Mið-Austurlöndum. Heimildarmenn New York Times í Íran segja stjórnvöld hafa lýst vilja til að láta af auðgun úrans í þrjú til fimm ár og minnka birgðir landsins af úrani undir alþjóðlegu eftirliti. Þeir vilja hins vegar að Bandaríkin láti af refsiaðgerðum sínum. Stjórnvöld í Íran eru einnig sögð hafa talað um að opna fyrir bandarískar fjárfestingar í landinu.
Íran Bandaríkin Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Sjá meira