Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Kjartan Kjartansson skrifar 17. febrúar 2026 09:51 Jesse Jackson (sitjandi) á minningarathöfn þegar sextíu ár voru liðin frá því að lögreglumenn réðust á svarta mótmælendur í bænum Selmu í Alabama í fyrra. Vísir/EPA Bandaríski blökkumannaleiðtoginn og mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson er látinn, 84 ára að aldri.
Fjölskylda Jackson staðfesti andlát hans í morgun. Hann hefði andast í friði á heimili sínu umkringdur ástvinum sínum. Ekki kom fram í tilkynningu hvert banamein Jackson var en hann var lagður inn á sjúkrahús í nóvember. Hann greindist með Parkinsons-sjúkdóminn árið 2017. Jackson var baptistaprestur frá Suður-Karólínu, einu af suðurríkjum Bandaríkjanna þar sem kerfisbundin mismunun í garð blökkumanna var lengur við lýði en annars staðar í landinu. Hann vakti athygli í hreyfingunni sem barðist fyrir borgararéttindum svartra og tók þátt í mótmælum við hlið Martins Luther King yngri. Jackson var meðal annars með King á móteli í Memphis í Tennessee þegar hann var myrtur árið 1968. Jesse Jackson á sokkabandsárum sínum í borgararéttindahreyfingunni árið 1970.AP/Sal Veder Í tvígang bauð Jackson sig fram sem forsetaefni Demókrataflokksins, árin 1984 og 1988, en hafði ekki erindi sem erfiði. Bill Clinton, þáverandi forseti, sæmdi Jackson frelsisorðu forsetaembættisins, æðstu nafbót sem óbreytur borgari getur hlotið í Bandaríkjunum, árið 2000 eftir að hann tók þátt í að semja um lausn þriggja bandarískra hermanna úr haldi Júgóslava. Á sínum síðustu árum lét Jackson stjórnmál sig enn varða. Hann sagði Donald Trump, meðal annars ógna fimmtíu ára baráttu fyrir borgararéttindum í Bandaríkjunum á sínum tíma. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Andlát Mannréttindi Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira