Samstarf

G-víta­mín eru litlu skrefin sem breyta miklu

Geðhjálp
Helstu innihaldsefnin í G-vítamíni Helgu Arnardóttur, MSc í félags- og heilsusálfræði sem starfar við einstaklingsbundna ráðgjöf hjá Geðhjálp, eru hreyfing, sköpunargleði, tengsl og hugleiðsla. Árleg vitundarvakning Geðhjálpar, sem nefnist G-vítamín, lýkur á laugardag. 
Helstu innihaldsefnin í G-vítamíni Helgu Arnardóttur, MSc í félags- og heilsusálfræði sem starfar við einstaklingsbundna ráðgjöf hjá Geðhjálp, eru hreyfing, sköpunargleði, tengsl og hugleiðsla. Árleg vitundarvakning Geðhjálpar, sem nefnist G-vítamín, lýkur á laugardag.  Mynd/Alda Valentína Rós.

Margir Íslendingar strengja áramótaheit í upphafi hvers árs og er algengt að þau snúi að einhvers konar líkamsrækt og líkamlegri heilsu. En skyldu margir strengja áramótaheit sem tengjast andlegri heilsu og geðrækt?

Á þorranum á hverju ári standa landssamtökin Geðhjálp fyrir vitundarvakningunni G-vítamín þar sem boðið er upp á einfaldar tillögur að atriðum til að bæta andlega líðan. Þannig er t.d. hægt að nálgast góð ráð á Facebook og Instagram síðum Geðhjálpar auk þess sem hægt er að sækja skjáhvílur og fá G-vítamín sent í tölvupósti daglega.

Febrúar mánuður er yfirleitt kaldur, dimmur og snjóþungur og því er mikilvægt að tileinka sér reglubundna geðrækt á þessum tíma árs. En hvað skyldi starfsfólk Geðhjálpar gera til að huga að eigin geðrækt í hversdagslífinu?

Við heyrðum í Helgu Arnardóttur, MSc í félags- og heilsusálfræði, sem starfar við einstaklingsbundna ráðgjöf hjá Geðhjálp en helstu innihaldsefnin í G-vítamíni hennar eru hreyfing, sköpunargleði, tengsl og hugleiðsla. 

„Ég hjóla yfirleitt til vinnu og ég finn vel hvað það hefur jákvæð áhrif á mig. Það losar um streitu, gefur mér orku og hreinsar hugann. Mér finnst líka mjög nærandi að eiga kyrrláta stund heima upp í sófa með hljóðbók og tebolla meðan ég prjóna. Sköpunargleðin fær útrás í gegnum prjónana og mér finnst gaman að velja saman liti og skapa fallegar flíkur.“

Helga reynir líka að halda í góða svefnrútínu og að hvílast þegar hún þarf á því að halda. „Ég hef lengi heillast að lífsspeki búddisma og hef tileinkað mér ýmsa iðkun þaðan eins og hugleiðslu og að tengjast augnablikinu stutta stund í senn í gegnum daginn.“

Sjálfsumhyggja er henni líka hugleikin og reynir hún að vinna með hana flesta daga. „Þá sýni ég sjálfri mér og öðrum umhyggju, mildi og skilning. Ég á tvo litla sambýlinga sem eru kettir og þeir hafa líka góð áhrif á líðan mína, litlir zen-meistarar sem kalla oft fram bros og hlýju. Svo eru góðar stundir með fjölskyldu og vinum auðvitað mikilvægur hluti af G-vítamíninu mínu.“

Ég hef lengi haft áhuga á geðheilsu og öllu því sem hefur áhrif á hana. Geðheilsan er í raun það mikilvægasta í lífinu – við óskum börnunum okkar þess helst að þeim líði vel og að lífið gangi vel hjá þeim.

Hún segir ótal margt sem hefur áhrif á geðheilsu fólks og margt af því tengist aðstæðum fólks og er eitthvað sem stjórnvöld og stofnanir í samfélaginu geta haft jákvæð áhrif á eins og aukinn jöfnuður, tækifæri til atvinnuþátttöku, öryggi og svo mætti lengi telja.

„Lífsvenjur okkar hafa líka mikil áhrif eins og að sofa nóg, hreyfa sig, efla félagstengsl o.fl. Geðrækt getur tekið á sig ótal mismunandi form tengd áhugamálum og lífsgildum hvers og eins en aðallega snýst hún um að gera það sem hefur jákvæð áhrif á líf okkar og líðan.“

Það eru líka til ákveðnar hugrænar æfingar sem fólk getur stundað reglulega á svipaðan hátt og líkamsræktaræfingar sem lúta svipuðum lögmálum þar sem endurtekningar styrkja okkur og auka hæfni. „Oft er til dæmis talað um að jákvæðni sé góð fyrir geðheilsuna og hún er það vissulega en við vitum kannski ekki hvernig við getum breytt okkur og orðið jákvæðari. Þetta er ekki eitthvað sem við þvingum fram heldur frekar eitthvað sem við ræktum hægt og rólega með okkur.“

Ein leið til þess er að stunda æfingu sem kallast þrír góðir hlutir en hún felst í því að enda hvern dag á að rifja upp eitthvað þrennt jákvætt sem gerðist yfir daginn og hugleiða hvað varð til þess að atburðirnir áttu sér stað. „Rannsóknir benda til þess að æfingin auki andlega vellíðan, bjartsýni og þakklæti og geti jafnvel dregið úr einkennum þunglyndis. Fleiri dæmi um geðræktar-æfingar eru hugleiðsluæfingar, þakklætisdagbók, styrkleikaæfingar og góðverk.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×