Börnin bíða – meðan bankar og auðlindahafar græða milljarða: Offita, hreyfingarleysi og biðlistar Sigurður Sigurðsson skrifar 17. febrúar 2026 06:30 Ísland stendur frammi fyrir alvarlegum velferðarvanda barna. Offita barna eykst gríðarlega hratt, hreyfingarleysi og svefnleysi eru vandamál og ofnotkun ávanabindandi snjalltækja seinkar þroska þeirra, jafnvel um áratug. Ofnotkun orkudrykkja er langt umfram eðlileg mörk og nikótínpúðar með nammibragði seljast eins og heitar lummur. Skert lestrarkunnátta er vandamál sem mörg börn þurfa að glíma við. Börnin eru einmanna og forvarnir í molum auk þess sem skólakerfið stendur ekki vel. Þetta er mjög skaðleg og grafalvarleg staða. Mikil aukning er á greiningu ADHD hjá Íslenskum börnum síðustu ár, Á Íslandi er óvenju hátt hlutfall barna og ungmenna á örvandi lyfjum miðað við nágrannalöndin. Þessi börn greinast einnig mjög oft með samhliða geðraskanir og er aukningin mikil. Þar til viðbótar er nú umræða um mjög aukið kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga. Barnafjölskyldur og sérstaklega einstæð foreldri búa alltof oft við mjög þrönga lágmarksframfærslu, jafnvel alvarlegan húsnæðisskort og börn af erlendum uppruna standa mjög höllum fæti. Veik börn bíða sólarhringum saman á bráðadeildum eftir nauðsynlegri bráðalæknisþjónustu. Þetta er ekki tilviljun – þetta er stefna stjórnvalda og alvarlega brotið kerfi sem hefur brugðist börnunum. Afleiðingarnar eru að þau greinast með aukin veikindi, gríðarlega aukna lyfjanotkun og verða seinþroska. Nær 100 milljarðar til bankanna en börnin vanrækt Á sama tíma og hagur barnanna virðist í aukinni óvissu skila bankarnir samanlagt nær 100 milljörðum króna í hagnað. Þessir peningar koma að stórum hluta frá heimilum barnanna – í gegnum verðtryggingu, vexti og þjónustugjöld. Milljarðar sem myndu annars styrkja velferð barna, renna í staðinn verðbættir í vasann hjá auðmannatoppunum í samélaginu og fjármagnseigendum. Á meðan líða börnin skort og allskonar ofbeldi, fátækt og vanhirðu. Forgangsröðin er mjög brengluð. Samfélag án velferðaröryggis barna er mjög brotið og risa-hagnaður auðhafa af sama samfélagi er niðurlægjandi og siðferðislaus. Opinberar stórftamkvæmdir soga til sín skattfé frá barnafjölskyldum Bygging á Nýjum Landspítala hefur dregist um áratugi. Kostnaður hefur hækkað svakalega, um tugi ef ekki hundruð milljarða sem aflað er meðal annars með skattfé á barnafjölskyldur og einstæð foreldri. Á meðan bíða veik börn eftir greiningu, aðgerðum og öruggri aðstöðu á sjúkrastofnunum. Sumir, svo sem verktakar og ráðgjafar eða fjárfestar græða stjarnfræðilega á töfum og viðbótarverkum sjúkrahússbygginga, en börnin - þau gera það ekki. Þau bíða bara, stundum lífshættulega veik eftir aðstoð, liggjandi á göngum bráðamóttökunnar. Hver tafadagur í sjúkrahússbyggingu er raunveruleg hættuleg bið fyrir börnin – ekki töluleg upphæð í skýrslu heldur lífum þeirra, heilsu og öryggi. Ekkert er spáð í það - bara spáð í stjarnfræðilegan einkagróðann af seinkun spítalaframkvæmdanna. Barnaverndarkerfið brást Áratugum saman virðist sem barnaverndarkerfið hafi stundum varið gerendur barnaofbeldis og barnamisnotkun - fremur en börnin. Það er ömurlegt hvað framkoma við börn var lengi á skelfilega lágu plani. Árið 2022 var barnaverndarkerfið endurskipulagt undir Barnaverndarþjónustu og Umdæmisráðum og unnt að áfrýja málum til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þetta tryggir faglegra verklag þó það verji enn ekki börnin gegn ofbeldi. Þetta sýnir hversu alvarlegar brotalamir eru í kerfinu. Börnin þurfa að bíða of lengi eftir vernd sem þau eiga rétt á auk þess sem verndin var stórkostlega gölluð í áratugi og virtist stundum jafnvel gerandanum í vil. Leikskólakrísan – grunnstoð barnæskunnar í molum Leikskólar glíma við skort á menntuðum kennurum með réttindi. Myglað og vanbúið húsnæði er notað fyrir leikskólabörn og eftirlit með öryggi barna er víða ábótavant. Biðlistar í leikskóla, ófullnægjandi húsnæði og vanræksla eru öryggisvandamál sem snerta hvert barn beint og getur valdið þeim varanlegu heilsutjóni. Þetta er grunnstoð barnæskunnar – og sem land, sem kallar sig ríkt velferðarríki má alls ekki bregðast ungum börnum svona með þessum hætti. Traustið sem er að molna Ef stjórnvöld geta ekki tryggt grunnöryggi barna, haldið kostnaði stórframkvæmda í skefjum eða stöðvað ofbeldi gegn börnum – hvernig á almenningur þá að treysta getu ríkisins í stjórnun velferðarkerfisins, flóknum auðlinda- og verktakasamningum, fjármálastjórn eða efnahagsákvörðunum? Traust byggist á því sem fólk finnur í eigin lífi: hvort börnin til dæmis fái raunverulega þjónustu og vörn. Þegar börn bíða eftir sjúkrahússþjónustu meðan milljarðar safnast annars staðar á fárra hendur, til dæmis vegna skyndigróða af seinkun sjúkrahússframkvæmda, veikist samfélagssáttin. Valdið ræður – konur taka prófið Konur sitja nú í mörgum af æðstu embættum þjóðarinnar – forseti, forseti Alþingis, heilbrigðisráðherra, leiðtogar margra stjórnmálaflokka, biskup og fleiri. Framfaraskref - ekki spurning. En ábyrgðin er sú sama: að setja börnin í fyrsta sæti. Ekki í ræðum, heldur í verki. Ef börnin bíða enn á bráðadeildinni, ef tafir, vanræksla og ill meðferð halda áfram, þá er vandinn kerfið sjálft – ekki einstaklingarnir. Hver á að koma börnunum í forgang í kerfinu og tryggja rétt þeirra og velferð? Það eru lögbundnar skyldur á ábyrgð stjórnvalda. Umhyggja og forgangsröðun Uppgjör snýst ekki um reiði eða tölur á blaði. Fjármagn sem rennur aukalega úr ríkissjóði - (og til dæmis frá barnafjölskyldum) - til banka, auðlindahafa, auðmanna, súper-verktaka og ráðgjafa, þurfa núna að renna miklu meira með eðlilegum hætti í grunnþjónustu barna. Þetta er heilbrigðisþjónusta þeirra, skólar, leikskólar, geðheilbrigðisstuðningur og öruggt umhverfi. Ábyrgð þarf að vera skýr, mælanleg og óháð stöðu valdamanna. Auðsöfnun samfélagsins mælist ekki í hagnaði banka og auðmanna heldur í lífi, heilsu og framtíð barnanna. Þannig þarf forgangsröðin að vera til að þjóðin haldi áfram að blómstra. Framtíð barnanna er ekki mælanleg í krónum og aurum þó gróði auðmanna sé það og er samt nær einskis virði á siðfræðilegum mælikvarða og viðmiði um reisn, stolt og kröfu til framþróunar menningar okkar og velferðar barnanna. Börnin eiga betra skilið Ein einföld regla fyrir valdhafana er að börnin verði alltaf sett í fyrsta sæti. Það er ekki hávær stefna eða slagorð. Það er grunnur samfélags eins og okkar sem vill vera sterkt, siðferðilega heilbrigt og réttlátt. Það er hinn raunverulegi ávinningur. Ef við getum skapað hundruð milljarða króna hagnað í bankakerfinu og tugi milljarða, auka(gróða)greiðslur í stórframkvæmdum og blásið út verðtryggða bankareikninga auðmanna, getum við örugglega tryggt að börn fái það sem þau þurfa – ekki á morgun, heldur í dag. Fjármagnið til þess verður að koma úr verðbættum hagnaði og gróða í samfélaginu en ekki með enn auknum lántökum ríkissjóðs. Það þarf að stoppa til að undirliggjandi verðbólguþrýstingur hætti að skerða lífskjörin, þar með talið barnanna. Uppgjörið hefst með þessari ákvörðun: að færa umhyggju og velferð ríkisins frá þeim sem græða á kerfinu – til þeirra sem þurfa hana mest. Börnin. Allt annað bíður. Þau eiga betra skilið og fjármagnið til að bæta stöðu barnanna þarf að koma úr verðbættum fjármunum sem myndast i samfélaginu. Ekki með lántökum. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Börn og uppeldi Mest lesið Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun