Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Bjarki Sigurðsson skrifar 16. febrúar 2026 21:02 Benedikt S. Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Vísir/Einar Samtök verslunar og þjónustu telja óhollustuskatt geta verið gríðarlega íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Þá myndu skatturinn hafa mest áhrif á þá tekjulægstu. Neytendur sem fréttastofa ræddi við voru á báðum áttum.
Starfshópur heilbrigðisráðherra kemur til með að skoða skatt á óhollar vörur, svo sem gjörunna matvöru og þær sem innihalda mikið magn sykurs. Sömuleiðis verður kannað að lækka álögur á hollari mat og sporna gegn markaðssetningu óhollra matvæla. Þessar hugmyndir leggjast illa í framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. „Það hefur líka verið skrifað um þetta síðustu ár, hér á landi einkum af hálfu landlæknisembættisins og það er kannski það sem að við höfum verið að horfa í. Þar hafa verið á ferðinni hugmyndir um að breyta virðisaukaskattskerfinu okkar og það leggst nú ekkert sérstaklega vel í menn að flækja kerfi sem menn hafa undanfarin ár verið að reyna að einfalda. Þannig að ég get ekki sagt að þetta leggist vel í okkur,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Bæði hærri sykurskattur og lægri álögur á hollan mat muni skapa óvissu í bókhaldi fyrirtækja, sem auki álagið gríðarlega. Þá séu það þeir tekjulægstu sem finna fyrir hækkuninni. „Það er einfaldlega vegna þess að útgjöld þeirra vegna kaupa á matvöru eru hlutfallslega hærri heldur en í tilviki þeirra sem eru tekjuhærri. Þannig ég get ekki sagt að það leggist eitthvað sérstaklega vel í verslunina, að þurfa að hækka verð á vörum vitandi það að það eru einhverjir tekjulægri sem finna fyrir því.“ Skiptar skoðanir neytenda Fréttastofa fór á stúfana og spurði neytendur hvað þeim finnst um óhollustuskatt. Nokkrum leist heldur vel á að leggja skatt á óhollar vörur en söngvarinn Herbert Guðmundsson, sem var á gangi í verslunarmiðstöðinni Kringlunni, var ekki sammála „Eru ekki skattar alltaf öðru verri. Mér finnst eina sem ríkisstjórnin sem er núna kann að gera er að setja skatt á okkur. Þarf ekki að skapa atvinnuveginn eða gera eitthvað sem býr til peninga. Verðum við ekki að hafa frjálst val?“ spyr hann. Finnst þér fólk borða of mikið af óhollum mat? „Ég veit það ekki, ég datt í tvær bollur áðan.“
Skattar, tollar og gjöld Matur Heilsa Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira